Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 77

Haldinn Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
04.06.2020 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2004184 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2020
Rekstraryfirlit - 4 mánaða uppgjör.
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi tillögu formanns:

Ljóst er að Covid-19 mun hafa mjög neikvæð áhrif á afkomu sveitarfélaga og er Sveitarfélagið Árborg þar ekki undanskilið, þó útlit sé fyrir að skellurinn verði talsvert minni en í öðrum sveitarfélögum. Kostnaður vegna aðgerða bæjarstjórnar til að bregðast við Covid-19 verður nálægt 100 milljónum króna. Fyrirsjáanlegt tekjutap vegna útsvarstekna verður varla undir 150 milljónum en hugsanlega meira. Auk þess vofir yfir að tekjur vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði lækki verulega. Afkoma sveitarfélagsins getur af þessu sökum orðið 200-400 milljónum lakari en fjárhagsáætlun og rekstrarhalli umtalsverður.
Eins og fram kemur í hvatningu til allra sveitarfélaga, sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi frá sér þann 14. maí síðastliðinn, er mikilvægt við þessar aðstæður að ástunda virkt eftirlit með fjármálum og fylgjast náið með þróun rekstrarins frá mánuði til mánaðar.
Bæjarráð samþykkir að gert verði sérstakt átak í eftirliti með framvindu fjárhagsáætlunar. Frávik frá áætlun verði metin og orsakir greindar ítarlega. Unnið verði að því með forstöðumönnum að koma í veg fyrir neikvæð frávik frá áætlun og halda öllum útgjöldum í lágmarki. Bæjarstjóra og fjármálastjóra, í samstarfi við hagdeild fjármálasviðs, er falið að gera aðgerðaráætlun um framkvæmd átaksins og leggja fyrir bæjarráð þann 18. júní.
Launakostnaður er ríflega helmingur af rekstrarkostnaði sveitarfélagsins og það er því áríðandi að koma í veg fyrir að álag og annmarkar á starfsumhverfi leiði til veikinda starfsfólks. Skýr viðverustefna og nákvæm fjarvistaskráning eru forsenda þess að bregðast megi tímanlega við, með samtali og nauðsynlegum úrbótum.
Bæjarráð óskar því eftir minnisblaði, frá bæjarstjóra og mannauðsstjóra, um umfang veikinda og fjarvista hjá sveitarfélaginu, ásamt tillögu að aðgerðum sem miða að bættu starfsumhverfi og lækkun veikindakostnaðar.
2. 2005235 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 notendaráð
Erindi frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 28. maí, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (notendaráð), 838. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til Fjölskyldusviðs til umsagnar.
2005235.pdf
3. 2005211 - Aðgerðarpakkar alþingis vegna Covid-19
Minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 26. maí, vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna Covid-19.
Bæjarráð Svf. Árborgar fagnar þeim jákvæðu skrefum sem þarna eru tekin til að ríki og sveitarfélög geti lagst saman á árarnar í að vinna gegn efnahagssamdrætti vegna Covid-19
Minnisblað vegna endurgreiðslu vsk.pdf
4. 2006003 - Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna 2020
Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna hf sem haldinn verður fimmtudaginn 11. júní, kl. 14:30.
Bæjarráð felur forstöðumanni bókasafns að sækja fundinn fyrir hönd Árborgar.
Boð á aðalfund Landskerfis bókasafna hf. 2020.pdf
5. 2002212 - Samstarf styrktaraðila Vísinda- og rannsóknasjóðs Suðurlands frá 2020
Beiðni frá vísinda- og rannsóknasjóðs Suðurlands, dags. 27. maí, þar sem óskað er eftir áframhaldandi að sveitarfélagið verði áfram styrktaraðili Vísindasjóðsins.
Bæjarráð samþykkir áframhaldandi samstarf um styrk til Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands vegna ársins 2020, kr. 150.000,-
Bréf til núverandi styrktaraðila sjóðsins 2020.pdf
Fundargerðir til kynningar
6. 2002034 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
884. fundur haldinn 20. maí.
884. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 884.pdf
7. 2001353 - Fundargerðir stjórnar SASS 2020
558. fundur haldinn 22. maí.
558. fundur stjórnar SASS.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica