Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 28

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
14.03.2019 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, Á-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1903038 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar
Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 6. mars, þar sem boðið er upp á umsögn um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, mál 86.
Lagt fram til kynningar.
FW: Frá nefndasviði Alþingis - 86. mál til umsagnar.pdf
2. 1903100 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 11. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), mál 90.
Lagt fram til kynningar.
FW: Frá nefndasviði Alþingis - 90. mál til umsagnar.pdf
3. 1903035 - Stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum 2019
Tilkynning frá Íbúðalánasjóði um að búið sé að opna fyrir umsóknir um stofnframlög.
Lagt fram til kynningar.
Auglýsing um stofnframlög 2019.pdf
FW: Hækkun á hámkarksbyggingarkostnaði og fleiri breytingar á reglugerð nr. 555/2016.pdf
4. 1902193 - Rekstrarleyfisumsögn - Tryggvaskáli
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 19. febrúar, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi til sölu veitingar í flokki III veitingarhús - Tryggvaskáli. Samþykkt var að veita jákvæða umsögn á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarnefndar 27. febrúar sl.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um að rekstrarleyfið verði veitt.
5. 1903016 - Rekstrarleyfisumsögn - Central Apartment
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 4. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi gististaður án veitingar í flokki II - Eyravegur 7, Selfossi. Samþykkt var að veita jákvæða umsögn á 15. fundi skipulags- og byggingarnefndar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um að rekstrarleyfið verði veitt.
6. 1703281 - Mat á umhverfisáhrifum við hreinsistöð fráveitu við Geitanesflúðir
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun - Hreinsistöð fráveitu á Selfossi.
Lagt fram til kynningar.
Ákvörðun-Hreinsistöð fráveitu á Selfossi.pdf
7. 1903021 - Endurskoðun samgönguáætlunar Suðurlands 2019-2028
Sveitarfélagið Árborg - Helstu forgangsverkefni SASS í samgöngumálum.
1. Hver eru þrjú helstu forgangsverkefni í nýframkvæmdum er varða samgöngur í sveitarfélaginu ykkar?
? Hringtorg og undirgöng á Eyrarvegi við Suðurhóla á Selfossi
? Ný brú yfir Ölfusá
? Umferðarmannvirki vegna þungaumferðar sunnan Selfoss (Tenging hringvegar við Þorlákshöfn)

2. Hver eru þrjú helstu forgangsverkefni í rekstri og viðhaldi samgöngumannvirkja í sveitarfélaginu ykkar?
? Umferð gangandi og hjólandi um núverandi Ölfusárbrú verði bætt
? Ástand Eyrarvegar er slæmt og aðkallandi að Vegagerðin fari í gagngerar endurbætur
? Austurvegur á Selfossi þarfnast mikilla endurbóta

3. Ef horft er á Suðurland sem heild, hvaða þrjár samgönguframkvæmdir myndi sveitarstjórn ykkar setja fremst á blað, aðrar en í ykkar sveitarfélagi?
? Tvöföldun Suðurlandsvegar verði hraðað sem kostur er
? Uppbygging og endurbætur á Þrengslavegi með breikkun vegar og bættri veglínu
? Uppbygging hafnarmannvirkja í Þorláksshöfn

4. Hver er afstaða sveitarstjórnar er varða áætlanir ríkisstjórnar um veggjöld?
? Afstaða Árborgar liggur ekki fyrir þar sem endanleg útfærsla á álagningu veggjalda er ekki ljós

5. Hvaða sýn hefur sveitarstjórn á fyrirkomulag almenningssamgangna á Suðurlandi?
? Ríkissjóður þarf að leggja mun meira fé í almenningssamgöngur svo auka megi tíðni ferða og bjóða ódýr fargjöld svo að almenningur fari að líta á þær sem raunhæfan valkost.
8. 1903073 - Svæðisskipulag Suðurhálendisins
Beiðni frá SASS, dags. 8. mars sl., um tilnefningu tveggja kjörinna fulltrúa og eins kjörins til vara frá hverju bæjar- og sveitarfélagi á Suðurlandi sem á land að Suðurhálendinu. Fulltrúarnir verða svo boðaðir á fund um hugmyndir um gerð svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið.
Fulltrúar Árborgar verða Ari Björn Thorarensen og Helgi S. Haraldsson. Varamaður verður Sigurjón V. Guðmundsson.
Svæðisskipulag Suðurhálendisins - Skipan tveggja kjörinna fulltrúa og eins til vara....pdf
9. 1903071 - Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Suðurlands 2020-2024
Beiðni frá SASS, dags. 15. febrúar, þar sem óskað er eftir tilnefningu á samráðsvettvagn Sóknaráætlunar Suðurlands 2020-2024. Sveitarfélögin á Suðurlandi eru beðin um að tilnefna fjóra fulltrúa á samráðsvettvanginn/fundinn, tvo kjörna fulltrúa og tvo aðra fulltrúa úr sveitarfélaginu. Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Suðurlands 2020 - 2024 verður haldinn á Hótel Selfossi 4. apríl 2019, klukkan 12.00 - 16:00.
Bæjarráð tilnefnir fyrir hönd Svf. Árborgar sem fulltrúa í samráðsvettvang Sóknaráætlunar 2020-2024:
Tómas Ellert Tómasson,bæjarfulltrúa,
Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúa,
Braga Bjarnason,
Jónu Sólveigu Elínardóttir.
Tilnefning fulltrúa við mótun Sóknaráætlunar Suðurlands 2020 til 2024.pdf
10. 1710064 - Heilsueflandi samfélag
Minnisblað frá Braga Bjarnasyni, menningar- og frístundafulltrúa
Bæjarráð samþykkir að skipa stýrihóp Sveitarfélagsins Árborgar um verkefnið Heilsueflandi samfélag. Fulltrúar í hópnum eru eftirfarandi:

- Guðmundur Kr. Jónsson, fulltrúi íþrótta- og menningarnefndar, eldri borgari
- Páll Sveinsson, fulltrúi úr grunnskólum Árborgar
- Ásrún Aldís Hreinsdóttir, fulltrúi úr Ungmennaráði
- Díana Gestsdóttir, fulltrúi búsettur á Selfossi og tengd heilsueflandi leikskólum
- Esther Guðmundsdóttir, fulltrúi búsettur á Eyrarbakka

Bragi Bjarnason verður starfsmaður hópsins
Heilsueflandi Samfélag stofnun stýrihóps - minnisblað 12.mars19.pdf
Fundargerð
11. 1902019F - Skipulags og byggingarnefnd - 15
Bæjarráð óskar eftir því við skipulags- og byggingarnefnd að unnar verði reglur um leyfisveitingar vegna reksturs gistiheimila í sveitarfélaginu. Tillaga að reglum verði lögð fyrir bæjarráð fyrir lok apríl mánaðar.
11.8. 1902208 - Tillaga að deiliskipulagi fyrir Vonarland Stokkseyri.
Lagt til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst.Sigurjón Vídalín Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Niðurstaða þessa fundar
11.18. 1811139 - Ósk um deiliskipulag - Vöttur
Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst.

Niðurstaða þessa fundar
Fundargerðir til kynningar
12. 1903090 - Fundargerðir hverfisráðs Eyrarbakka
25. fundur hverfisráðs Eyrarbakka, haldinn 10. mars 2019, ásamt tillögum að breytingum á samþykktum fyrir hverisráð Sveitarfélagsins Árborgar
Bæjarráð þakkar metnaðarfulla tillögu hverfisráðs Eyrarbakka að nýjum samþykktum hverfisráða Árborgar en frestar frekari umfjöllun um tillöguna þar til öðrum hverfisráðum hefur gefist kostur á að koma á framfæri sínum tillögum um þær.
hverfisrad-Eyrarb_25-fundur_100319.pdf
hverfisrad_samanb_samthykkt.pdf
tillaga_samthykkt_fyrir_hverfisrad.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica