Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 16

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
20.03.2019 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista,
Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista,
Sigurður Andrés Þorvarðarson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingafulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Stefán Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Bárður Guðmundsson, Byggingafulltrúi
Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð.


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 1903133 - Fyrirspurn til bygginganefndar um lengingu hússins að Eyrarbraut 29 Stokkseyri. Fyrirspyrjandi: Gísli ehf.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda og afla frekari gagna.
2. 1902296 - Umsókn um byggingaleyfi að Hólatjörn 5 Selfossi. Umsækjendur: Hilmar Sigurjónsson og Ellý Tómasdóttir
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afgreiða erindið.
3. 1903047 - Fyrirspurn til bygginganefndar vegna áforma við Lækjarbakka 7 Selfossi. Fyrirspyrjandi: Ólafur Tage Björnsson fyrir hönd lóðarhafa
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir Lækjarbakka 2, 4, 5 og 9.
4. 1903134 - Fyrirspurn til bygginganefndar vegna áforma um byggingu bílskúrs að Skógarflöt Sandvíkurhrepp. Fyrirspyrjandi: Tómas A.
Fyrirspyrjenda er bent á að öll byggingaráform verða að vera í samræmi við gildandi deiliskipulag. Einnig er ítrekað að vegtengin við Votmúlaveg er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og því með öllu óheimil.
5. 1804038 - Fyrirspurn til bygginganefndar um byggingu iðnaðarhúsnæðis að Eyravegi 59 Selfossi. Fyrirspyrjandi: Siggi Kalla ehf.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna.
6. 1903138 - Fyrirspurn til bygginganefndar vegna starfsleyfisskylds reksturs í íbúabyggð að Hrísholti 17 Selfossi. Fyrirspyrjendur: Hafdís Rósa og Trausti Ísleyfsson.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda.
7. 1903074 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna nýrrar hitaveitulagnar meðfram Suðurlandsvegi. Umsækjandi: Selfossveitur.
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdaleyfið verði samþykkt.
8. 1903152 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningu jarðstrengs. Umsækjandi: Hs veitur
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdaleyfið verði samþykkt.
9. 1903077 - Umsókn um stofnun nýrrar lóðar, Eyði-Mörk 2 Sandvíkurhrepp. Umsækjendur: Ólafur Kristjánsson og María Hauksdóttir
Lagt er til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
10. 1903078 - Umsókn um stofnun nýrrar lóðar, Geirakot 3 Sandvíkurhrepp. Umsækjendur: Ólafur Kristjánsson og María Hauksdóttir
Lagt er til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
11. 1903079 - Umsókn um stofnun nýrrar lóðar, Geirakot 2 Sandvíkurhrepp. Umækjendur: Ólafur Kristjánsson og María Hauksdóttir
Lagt er til við bæjarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt.
12. 1902150 - Breytingar á deiliskipulagi Sundhallarreits.
Lagt er til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Sundhallarreits verði auglýst.
13. 1901280 - Afgreiðsla á grenndarkynningu vegna byggingaleyfisumsóknar að Urriðalæk 24 Selfossi. Engar athugasemdir bárust.
Lagt er til við bæjarráð að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
14. 1901277 - Afgreiðsla á grenndarkynningu vegna breyttrar vegtengingar að Suðurbraut 25 Tjarnarbyggð. Engar athugasemdir bárust.
Lagt er til við bæjarráð að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt.
15. 1811021 - Tillaga að lóð undir kirkju Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í Hagalandi.
Lagt er til við bæjarráð að tillaga að legu lóðar verði samþykkt og stofnuð. Einnig er lagt til að lóðinni verði úthlutað til Kaþólsku kirkjunnar.
16. 1609215 - Breytingar á deiliskipulagi í Björkurstykki.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga að nýju á deiliskipulagi fyrir Björkurstykki með þeim breytingum sem á tillögunni hafa verið gerðar.
17. 1903002F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 15
17. 1903166 - Lögð fram tillaga að nýrri þjónustulóð á horni Norðurhóla og Suðurhóla.
Lagt er til að tillaga að legu lóðar og lóðarstærð verði samþykkt.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica