Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 50

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
26.08.2020 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Kristbjörn Hjalti Tómasson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sigurður Andrés Þorvarðarson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sigurður Andrés Þorvarðarson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2008157 - Umsókn um lóðina Norðurhóla 5 Selfossi.
Umsækjandi: Bræðurinir Róbertsson ehf
Samþykkt að úthluta lóðinni til umsækjanda.
2. 1810116 - Fyrirspurn um nýtingu og skiptingu lóðar að Miðtúi 15 Selfossi.
Fyrirspyrjandi:fh. eigenda Pro-Ark ehf
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir eigendum að Miðtúni 13, 14, 16, 17, 18, 20 og 22.
3. 1912054 - Tillaga að deiliskipulagi að Heiðarbrún 6-6b Stokkseyri, áður á fundi 20. maí sl.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
4. 1910179 - Aðalskipulagsbreyting að Austurbyggð.
Skipulagsfulltrúa falið að koma ábendingum til skipulagshönnuða.
5. 2008159 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir stíg og hraðahindrun við Vesturhóla.
Umsækjandi: Sveitarfélagið Árborg.
Lagt er til við bæjarráð að framkvæmdaleyfið verði veitt.
6. 2008178 - Landskipti - Nýibær 3
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir landskiptin fyrir sitt leiti.
7. 2008179 - Landskipti - Nýibær Lnr 166202
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir landskiptin fyrir sitt leiti.
8. 2007213 - Umsókn um stækkun á byggingarreit að Sílalæk 15, Selfossi.
Erindið hefur verið grenndarkynnt og engar athugasemdir borist. Erindið er samþykkt.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica