Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 61

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
17.03.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2103046 - Ránarbakki - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Árni Bragason sækir um leyfi til að byggja nýtt frístundahús úr timbri á steyptum sökklum.

Helstu stærðir 138,3m² 504,1m³

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd.

2. 2103161 - Kelduland 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigri ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri.

Helstu stærðir 221,7m² 889,6m³

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði uppfærður í samræmi við athugasemdir brunavarna.



Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.

3. 1909108 - Byggingarleyfisumsókn - Eyrargata 65
Gísli Ragnar Kristjánsson og Guðmundur Kristjánsson sækja um leyfi til stækkunar á húsinu.

Helstu stærðir 338,9m² 1038,5m³

Erindið var áður á 26. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og hefur verið grenndarkynnt og samþykkt skipulagsnefnd.

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.
4. 2102434 - Byggðarhorn Búgarður 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Örn Sigurðsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á íbúðarhúsi.

Helstu stærðir 63,9m² 220,9m³

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt.



Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.

5. 2103209 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ríkiseignir sækja um leyfi til að byggja viðbyggingu að Tryggvagötu 25.

Helstu stærðir 2873,6m² 2907,9m³

Fyrir liggja gögn skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2.
Byggingaráform samþykkt.



Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð.

6. 2103090 - Tilkynning um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi - Norðurleið 19
Hafþór Ingi Bjarnason tilkynnir um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi á lóð.
Óskað er eftir greinargerð umsækjanda um heildar byggingaráform á lóðinni með tilliti til markmiða deiliskipulagsins.

Afgreiðslu frestað.
7. 2103199 - Tilkynningarskild framkvæmd - Sílalækur 10
Steindór Gunnarsson tilkynnir um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi á lóð.
Smáhýsi á lóð sbr. Byggingarreglugerð 2.3.5. staflið g.
Fyrir liggur skriflegt samþykki eigenda nágrannalóða.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framkvæmdina enda séu önnur ákvæði greinar í 2.3.5. g. uppfyllt.
8. 2103208 - Tilkynning um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi - Sunnuhvoll
Hákon Valur Haraldsson tilkynnir um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi, viðbyggingu.
Tilkynningarskyld framkvæmd sbr. gr. 2.3.5.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framkvæmdina.
9. 2103089 - Stöðuleyfi - Víkurheiði
Verktækni ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 2 gáma vegna vinnu við nýtt hringtorg við Hólastekk.
Umsækjandi skal leggja fram samþykki lóðarhafa að Víkurheiði 1.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica