Grýlupottahlaupið 2022 á Selfossvelli
Grýlupottahlaup Umf. Selfoss hefst laugardaginn 23. apríl.
Skráning hefst kl. 10:00 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið sjálft hefst kl. 11:00.
Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Í hlaupinu eru sex einstaklingar ræstir saman með hálfrar mínútu millibili. Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.
Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með!
Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð.
Næstu hlaup verða laugardagana 30. apríl, 7., 14, 21. og 28. maí.