Greiðsluseðlar fasteignagjalda nú aðgengilegir á Ísland.is
Bilun olli seinkun á greiðsluseðli fyrir júnímánuð.
Sveitarfélagið Árborg hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag þar sem greiðsluseðlar fasteignagjalda eru nú aðgengilegir á Ísland.is.
Með breytingunni færist útgáfa seðlanna frá rafrænum skjölum í netbanka yfir á sameiginlega þjónustugátt hins opinbera, sem einfaldar yfirsýn og aðgengi íbúa að sínum gögnum.Vegna tæknilegrar bilunar barst greiðsluseðill fyrir júnímánuð síðar en áætlað var og birtist í dag. Unnið er að því að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki og biður sveitarfélagið íbúa velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Íbúar geta nú nálgast greiðsluseðla fasteignagjalda með því að skrá sig inn á Ísland.is og fara í „Mín mál“ þar sem seðlarnir eru aðgengilegir.


