Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 7

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
28.10.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Linda Björk Hilmarsdóttir formaður, D-lista,
Ari B. Thorarensen varaformaður, D-lista,
Esther Ýr Óskarsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Guðrún Rakel Svandísardóttir nefndarmaður, B-lista,
Árni Magnússon nefndarmaður, S-lista,
Guðný Björk Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Linda Björk Hilmarsdóttir, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2604081 - Litla Sandvík; Deiliskipulagstillaga
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags tekur til hluta úr landi Litlu Sandvíkur, landi 1. (L211951), sem staðsett er í dreifbýli í Sveitafélaginu Árborg. Markmið skipulagsins er að gera ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss, skemmu og smáhýsa ásamt nauðsynlegum innviðum. Skipulagssvæðið nær til um 48.000 m², sem er um þriðjungur af heildarstærð jarðarinnar. Athugasaemdir bárstu við tillöguna á auglýsingatíma hennar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu hennar ásamt uppfærðri tillögu.
Að mati skipulagsnefndar eru heimildir um fjölda gistirýma innan tillögunnar umfram almenna skilmála aðalskipulags sveitarfélagsins er varðar starfsemi á landbúnaðarlandi þar sem miðað er við að heimild sé að stunda starfsemi ótengda landbúnaði upp á ákveðnum marki. Innan auglýstrar greinargerðar skipulagstillögunnar var ekki tekið til fjölda gistirýma innan tillögunnar heldur eingöngu fjölda húsa. Innan uppfærðra ganga er tekið til þess að innan hvers húss geti verið gistirými fyrir 6-8 manns. Það er að mati nefndarinnar nokkuð umfangsmeiri rekstur en svo að hann geti talist minniháttar atvinnustarfsemi og er eins og fyrr segir umfram almennar heimildir til starfsemi ótengt landbúnaði þar sem segir í kafla 4.2.1. Á bújörðum er heimilt að hafa húsnæði allt að 500 m2 fyrir starfsemi sem er ótengd landbúnaði. Einnig er heimilt að byggja 4 stök frístundahús og vera með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Uppbyggingin skal vera í tengslum við núverandi byggð til að nýta þær veitur og samgönguleiðir sem fyrir eru. Jafnframt telur nefndin þörf á að leita nánara samráðs við Selfossveitur um vatnsveitu svæðisins. Tiltekið er sérstaklega í uppfærðri greinargerð að fyrirvari sé settur á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og skemmu er varðar vatnsinntak þar sem lögn að svæðinu hefur ekki nægan þrýsting. Nefndin bendir á í því tilliti að uppbygging á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi innan landbúnaðarland án skilgreiningar viðeigandi landnotkunar í takt við starfsemina er alltaf háð því að föst búseta sé á svæðinu og að íbúðarhús sé byggt áður en gistihús eru byggð.
Afgreiðslu málsins frestað.
Frestað
2. 2610223 - Byggðarhorn 15-17 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram fyrirspurn frá Sigurði Erni Sigurðssyni er varðar fjölgun lóða innan deiliskipulags byggðarhorns. Um er að ræða breytingu sem tekur til þess að á 15-17 verði gert ráð fyrir 6 lóðum í stað 4 lóða.
Að mati skipulagsnefndar er nauðsynlegt að leysa úr ágreiningsefnum er varðar Byggðarhornsveg áður en til frekari fjölgunar á lóðum kemur. Fyrir liggur að Vegagerðin hefur tilkynnt sveitarfélaginu Árborg um fyrirætlanir sínar um að vegurinn falli af Vegaskrá vegna þeirra breytinga sem unnar hafa verið á deiliskipulagi svæðisins m.a. með fjölgun lóða og að vegurinn standist ekki kröfur Vegagerðarinnar um héraðsvegi eins og staðan er. Að mati skipulagsnefndar eru ekki forsendur fyrir frekari fjölgun lóða innan svæðisins fyrr en leyst hefur verið úr þeim ágreiningi á milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar. Framlagðri fyrirspurn um fjölgun lóða er synjað.
Hafnað
3. 2610224 - Kálfhólar 2 - Viðbygging - Fyrirspurn
Lögð er fram fyrirspurn frá eigendur Kálfhóla 2, Helga Bárðarsyni og Anní G. Jónsdóttir er varðar hugsanlega 39,9 fm viðbyggingu við húsið til austurs í átt að Erlurima. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir hverfið. Samkvæmt lóðarblaði fer viðbyggingin 3,58 fm út fyrir skilgreindan byggingarreit. Óskað er eftir undanþágu og/eða breytingu á lóðarblaði með það að markmiði að viðbyggingin falli innan marka. Engin sameiginleg lóðarmörk eru upp að fyrirhugaðri viðbyggingu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða fyrirspurn vegna viðbyggingar við Kálfhóla 2 á grundvelli framlagðar gagna. Mælist nefndin til þess að málið fái afgreiðslu á grundvell 44.gr. skipulagslaga er varðar grenndarkynningu. Málið verði grenndarkynnt.
Samþykkt
4. 2210290 - Gjaldskrár mannvirkja- og umhverfissviðs
Lögð er fram gjaldská skipulags- og byggingarsviðs 2027 til umræðu og samþykktar.
Að mati skipulagsnefndar er ekki ástæða til hækkunar á gjaldskrár skipulags- og byggingarmála. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt
5. 2606112 - Endurskoðun Aðalskipulags Árborgar - (2026-2038) 2028-2040
Undirbúningur við endurskoðun aðalskipulags Árborgar. Umræður um stöðu málsins og áframhald vinnunar.

Lagt fram til umræðu.
Til kynningar
Fundargerðir
6. 2610011F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 181
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr 181.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica