Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 146

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
22.01.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2401125 - Skógarflöt 9a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Skógarflöt ehf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi íbúðarhús.
Helstu stærðir eru; 122,1 m² og 326,8 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2501196 - Suðurleið 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri fyrir hönd Myrkrarborga ehf. sækir um leyfi til að byggja úthús.
Helstu stærðir eru; 26,2m² & 79,7m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2302289 - Stöðuleyfi - Suðurgata 14
Oddur Hafsteinsson óskar eftir endurnýjun á stöðuleyfi fyrir 2 gáma sem notaðir eru fyrir matvælavinnslu að Suðurgötu 14.
Samþykkt er að veita stöðuleyfi í 6 mánuði þ.e. 22.01.2025-22.07.2025.
Samþykkt
4. 2501247 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Vatnsborun ehf. vegna borun á neysluvatnsholu VSS-38 á L161793
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Vatnsborun ehf. um nýtt starfsleyfi vegna borun á neysluvatnsholu VSS-38 á vatnsverndarsvæði Vatnsveitu Árborgar undir Ingólfsfjalli L161793.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
5. 2501270 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Austurveg vegna rekstur gististaðar að Austurveg 2D
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Austurveg um nýtt starfsleyfi fyrir gististað að Austurveg 2D, fnr. F2514187
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
6. 2501267 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Fótaaðgerð Ídu að Eyraveg 37
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Fótaaðgerð Ídu um nýtt starfsleyfi fyrir fótaaðgerðarstofu að Eyraveg 37, fnr. F2185758.
Byggingarfulltrúi getur ekki gefið jákvæða umsögn þar sem að breyting á rými innanhús hefur ekki verið samþykkt.
Frestað
7. 2501266 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Iceheaven að Suðurgötu 14
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Iceheaven ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir matvælaframleiðslu að Suðurgötu 14, fnr. F2306757.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, einnig hefur umrædd fasteign stöðuleyfi til 22.07.2025 þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis þar til stöðuleyfi rennur út.
Samþykkt
8. 2501098 - Rekstrarleyfisumsögn - Skemmtistaður að Eyraveg 1 vegna veitinga í flokki III
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Gott kvöld ehf. um rekstrarleyfi til veitinga í flokki III, Tegund: B skemmtistaður.
Heiti staðar: Risið, Eyrarvegur 1 F2520458, rýmisnúmer 01 0202, 0204 & 0205.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
9. 2501224 - Rekstrarleyfisumsögn Eyravegur 1D - Miðbar - rekstur veitinga í flokki III
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Gott kvöld ehf. um rekstrarleyfi til veitinga í flokki III, Tegund: F krá, G samkomusalur
Heiti staðar: Miðbar, Eyrarvegur 1D F2520459 rýmisnúmer 0201.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica