Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 132

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
29.05.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2405271 - Fossvegur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Rafael Cao Romero Millan hönnunarstjóri fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborg sækir um leyfi til að byggja útiskála.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
2. 2405272 - Litla Sandvík land 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hrafnkell Már Stefánsson hönnunarstjóri fyrir hönd Stefáns Már Stefánssonar sækir um leyfi til að byggja bílgeymslu.
Helstu stærðir eru; 31,8m² og 119,4 m³.

Erindinu er hafnað vegna ófullnægjandi gagna.
Hafnað
3. 2405204 - Lón - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Þorsteinn Jafet Arnþórsson hönnunarstjóri fyrir hönd Bláhiminn ehf.sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi sumarbústað.
Stærð viðbyggingar er; 26,7m².

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlit Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2402363 - Túngata 46 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Einar Inga Jónssonar sækir um leyfi til að rífa núverandi viðbyggingu (27m²) og búa til nýja viðbyggingu sem fellur betur að byggingarstíl hússins. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa númer 126 og var vísað til skipulagsnefndar.
Helstu stærðir eru; 156,7m2 og 334,4m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1, erindið hefur verið grenndarkynnt án athugasemda og fengið umsögn minjastofnunar . Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa og skil á skráningartöflu. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2405248 - Víkurheiði 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson hönnunarstjóri fyrir hönd PRO-Garðar ehf. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhús.
Helstu stærðir eru; 1.120m² og 8.234,3 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og jákvæða umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2405293 - Stöðuleyfi vegna frístundahús í smíðum - Lágteigur lóð 1
Emma Kristina Gullbrandsson óskar eftir stöðuleyfi fyrir frístundahús í smíðum sem staðsett á að vera á Lágteig lóð 1 á tímabilinu 16.06.2024-16.06.2025

Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir frístundahúsi í smíðum á tímabilinu 16.06.2024-16.06.2025
Samþykkt
7. 2405316 - Stöðuleyfi - Eyrarbraut 29
Friðrik Kjartansson óskar eftir stöðuleyfi fyrir 40 feta gám sem staðsettur verður á Eyrarbraut 29 á tímabilinu 30.05.2024-30.05.2025.

Fyrir liggur samþykki eigenda að iðnaðarbilunum á Eyrarbraut 29.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir gámnum á tímabilinu 30.05.2024-30.05.2025
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica