Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 150

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
19.03.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2503281 - Láland 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Hátak ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 229,1 m² og 817,2 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa auk athugasemda eldvarnaeftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2503300 - Suðurleið 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnuður fyrir hönd Þurý Báru Birgisdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir eru; 52 m² og 174,2 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
3. 2503291 - Víkurheiði 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Lúðvík Stefánsson f.h. Íslandsturna og Húsfélagsins Hellismýri 12, óskar eftir leyfi til að setja upp og festa fjarskiptaloftnet og tilheyrandi tæknibúnað á galvanhúðuðum stálrörum á austur enda byggingar í samræmi við meðfylgjandi gögn. Búnaðurinn er til að sinna farsímaþjónustu í nærumhverfinu. Tæknibúnaður mun tengjast húsrafmagni og ljósleiðaraneti í núverandi tæknirými.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
4. 2503225 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Seljavegur 9
Eyrún Ólafsdóttir eigandi Seljaveg 9 og Hulda H. Óladóttir og Hilmar Þór Harðarsson eigendur Seljaveg 11 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar. Eigandi Seljaveg 9 leitar einnig samþykkis Sveitarfélagsins Árborg vegna áformana.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og umhverfissviðs.
Vísað í nefnd
5. 2211057 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Heilsulind Austurvegi 4
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Heilsulind nudd og meðferðarstofu í Miðgarði F2229307, Austurvegi 4
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
6. 2503257 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Eldum gott að Austurveg 42 vegna Pizzusjálfsala
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Eldum gott ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir pizzusjálfsala að Austurveg 42, fnr. F2185455.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
7. 2503148 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Skógarflöt 9a vegna gististað í flokki II
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna Skógarflöt ehf. um starfsleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: C minna gistiheimili.
Heiti staðar: Skógarflöt, Skógarflöt 9a, 801 Selfoss F2530706, rýmisnúmer 01 0101, 01 0103 og hámarksfjöldi gesta er 10.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
8. 2503063 - Rekstrarleyfisumsögn - Skógarflöt 9a vegna gistilieyfi í flokki II
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna Skógarflöt ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: C minna gistiheimili.
Heiti staðar: Skógarflöt, Skógarflöt 9a, 801 Selfoss F2530706, rýmisnúmer 01 0101, 01 0103 og hámarksfjöldi gesta er 10.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt
9. 2503316 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyr veitingar ehf
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna Eyr veitingar ehf. um rekstrarleyfi til veitinga í flokki II, Tegund: A ; Veitingahús og G ; samkomusalur.
Heiti staðar: Skógarflöt, Skógarflöt 9a, 801 Selfoss F2185689, rýmisnúmer 01 0108 og hámarksfjöldi gesta er 180.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica