Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 5

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
27.10.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Olga Bjarnadóttir varaformaður, D-lista,
Ragnar Óskarsson nefndarmaður, D-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
5. 2210290 - Gjaldskrár mannvirkja- og umhverfissviðs
Farið yfir breytingar á gjaldskrám sviðsins fyrir árið 2027
Nefndin fór yfir gjaldskrár fyrir 2027.
6. 2610110 - Fjárfestingaráætlun 2027-2030
Farið yfir drög að fjárfestingaráætlun 2027-2030.
Farið yfir drög að fjárfestingaráætlun 2027-203
Erindi til kynningar
1. 2102410 - Hreinsistöð við Geitanes
Farið yfir fundargerðir og minnisblað byggingastjóra.
Minnisblað um verkstöðu lagt fram til kynningar. Áætlað er að stöðin verði tekin í notkun byrjun árs 2027.
Ágúst Þór Bragason, deildarstjóri þjónustumiðstöðvar kemur inn á fundinn
2. 2609028 - Fyrirspurn frá áheyrnafulltrúa C-lista - Gróður og umhirða
Svar við fyrirspurn áheyrnafulltrúa C-lista.
Lagt fram til kynningar.
3. 2610217 - Fráveita - vöktun Ölfusá
Farið yfir nýjar aðferðir við vöktun fráveitu í Ölfusá.
Nefndinni var kynnt ný aðferð við sýnatöku vegna vöktunar fráveitu í Ölfusá. Með notkun dróna hefur tekist að draga úr þörf fyrir að starfsmenn fari út á ána við sýnatöku og þannig auka öryggi og nákvæmni við framkvæmd verkefnisins. Lagt fram til kynningar.
Ágúst Þór víkur af fundi kl 08:50
4. 2509490 - Fjárfestingaráætlun 2026-2029
Farið yfir stöðu nýframkvæmda og endurskoðun fjárfestingaráætlunar 2026
Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda í fjárfestingaráætlun 2026.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica