Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 16

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
28.10.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601408 - Upplýsingar frá mannauðsdeild 2026
Bæjarstjóri kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út september 2026
Bæjarstjórn kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út september 2026.
Samþykkt
2. 2610235 - Áskorun - aðstaða rafíþróttadeildar
Áskorun frá framkvæmdastjórn Umf.Selfoss dags. 26. október, þar sem skorað er á bæjarstjórn að tryggja rafíþróttadeild félagsins hentugt húsnæði.

Bæjarráð þakkar framkvæmdastjórn Umf. Selfoss fyrir erindið, þar sem bent er á að núverandi aðstaða rafíþróttadeildarinnar í Vallaskóla sé ófullnægjandi og hamli starfsemi og fjölgun iðkenda. Við gerð fjárhagsáætlunar er unnið að endurnýjun langtíma fjárfestingaráætlunar sveitarfélagsins þar sem fjárfestingarverkefnum er forgangsraðað með hliðsjón af þörf, umfangi, kostnaði og fjárhagslegri getu sveitarfélagsins. Bæjarráð vísar erindinu til þeirrar vinnu og leggur til að þar verði lagt mat á húsnæðisþörf rafíþróttadeildarinnar og mögulegar lausnir í samhengi við aðrar fjárfestingar sveitarfélagsins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða hvort að það séu möguleikar á að nýta annað húsnæði í eigu sveitarfélagsins sem skammtímalausn.
Vísað í teymi
Áskorun til Árborgar- Rafíþróttadeild.pdf
3. 2610242 - Áskorun - yfirbyggð sundlaug í Sundhöll Selfoss
Áskorun frá framkvæmdastjórn Umf.Selfoss, dags. 26. október þar sem skoðar er að bæjarstjórn að samþykkja og fjármagna yfirbyggingu nýrrar sundlaugar við Sundhöll Selfoss samhliða uppbyggingu laugarinnar.
Bæjarráð þakkar framkvæmdastjórn Umf. Selfoss fyrir erindið, þar sem bent er á mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi góða aðstöðu til sundþjálfunar og sundkennslu allt árið. Eins og fram kemur í erindinu er uppbygging kennslusundlaugar við Sundhöll Selfoss þegar til skoðunar og innan fjárfestingaráætlunar. Við gerð fjárhagsáætlunar er unnið að endurnýjun langtíma fjárfestingaráætlunar sveitarfélagsins þar sem fjárfestingarverkefnum er forgangsraðað með hliðsjón af þörf, umfangi, kostnaði og fjárhagslegri getu sveitarfélagsins. Bæjarráð vísar erindinu til þeirrar vinnu og leggur til að þar verði lagt mat á umfang, kostnað og forgangsröðun yfirbyggingar sundlaugarinnar í samhengi við aðrar fjárfestingar sveitarfélagsins.
Vísað í teymi
Áskorun til Árborgar - Sunddeild.pdf
4. 2610234 - Syndum - landsátak í sundi 2026
Erindi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands dags. 23. október þar sem kynnt er landsátak í sundi sem hefst 1. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur íbúa til að taka þátt í landsátakinu.
Til kynningar
Tölvupóstur - Syndum hefst 1. nóvember.pdf
5. 2610228 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og fer yfir drög að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2027-2030.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn og fer yfir drög að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2027-2030. Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til áframhaldandi úrvinnslu á stjórnsýslu- og fjármálasviði fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt
Fundargerðir
6. 2610019F - Ungmennaráð - 9/2026
9. fundur haldinn 19. október.
Til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica