|
| Almenn erindi |
| 1. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026 |
| Málinu frestað til næsta fundar. |
| Frestað |
|
|
|
| 2. 2609130 - Verkfallslisti 2026 |
| Farið yfir drög að skrá yfir störf hjá Sveitarfélaginu Árborg sem eru undanþegin verkfallsheimildum. Bæjarráð felur mannauðsstjóra að vinna málið áfram og leggja endanlegan lista fyrir bæjarráð. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 3. 2608083 - Breytingar á húsnæði Sunnulækjarskóla |
| Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu um útfærslu á húsnæði á 2. hæð í íþróttahúsinu Baulu í Sunnulækjarskóla til afnota fyrir Sunnulækjaskóla til skoðunar í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2027. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 4. 2609135 - Húsnæði - Setur og Kotið |
| Bæjarráð samþykkir að hefja undirbúning við þarfagreiningu á byggingu húsnæðis við Sunnulækjarskóla undir starfsemi Setursins og Kotsins. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samráði við fjölskyldusvið og mannvirkja- og umhverfissvið. |
| Samþykkt |
|
|
|
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri kemur inn á fundinn kl. 8:45
|
| 5. 2609101 - Húsbúnaður viðbót v. fjölgun barna |
| Bæjarráð tekur jákvætt í beiðni um viðauka að upphæð 1.700.000,-, vegna kaupa á húsbúnaði fyrir Bjarkarból, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar á viðauka við fjárhagsáætlun. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fyrir viðauka vegna kaupa á húsbúnaði að fjárhæð 1.700.000,- til samþykktar hjá bæjarráði. |
| Samþykkt |
|
|
|
| 6. 2609142 - Beiðni um aukin stöðugildi á frístundaheimilum |
| Bæjarráð tekur jákvætt í beiðni um aukin stöðugildi á frístundaheimilum vegna fjölgunar barna sem nýta þjónustuna, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar á viðauka við fjárhagsáætlun. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fyrir viðauka vegna fjölgunar á stöðugilda á frístundaheimilum að fjárhæð 26.700.000,- til samþykktar hjá bæjarráði. |
| Samþykkt |
|
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fer af fundinum kl. 9:15
|
|
|
| 7. 2609121 - Breyting á samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga |
| Lagt fram til kynningar. |
| Tölvupóstur - Landsþing - breytingar á samþykktum.pdf |
|
|
|
| 8. 2606321 - Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 - tillaga að stjórn Sambandsins 2026-2030 |
| Lagt fram til kynningar. |
| Tölvupóstur - Tillaga kjörnefndar að stjórn Sambandsins 2026-2030.pdf |
|
|
|
| 9. 2609089 - Notendaráð sveitarfélaga |
| Lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið Árborg hefur nú þegar kosið í Öldungaráð, notendaráð í málefnum fatlaðs fólks og ungmennaráð. |
| Notendaráð sveitarfélaga.pdf |
|
|
|
| 10. 2608189 - Vindorkuhugmynd - 6. áfangi rammaáætlunar |
| Bæjarráð Árborgar tekur undir álit nágrannasveitarfélaga um mikilvægi þess að sátt náist um þá virkjanakosti sem eru til skoðunar og að efnahagslegur ávinningur af raforkuframleiðslu og flutningi raforku verði að stærri hluta eftir í nærsamfélaginu. Bæjarráð Árborgar tekur einnig undir þær áhyggjur að áformaðar virkjanir, þ.e. Mosfellsheiðarvirkjanir og Hrútmúlavirkjun sjáist vel frá stóru landsvæði, m.a. fjölförnum ferðamannastöðum líkt og Þingvöllum. Mikilvægt er greina vel ávinning af uppbyggingunni og kynna hagaðilum til að skapa sem besta sátt um verkefnin. |
| Samþykkt |
| Bréf Árborg.Mosfellsheiðarvirkjanir I.pdf |
| Lög um breytingu á ramma (vindorka og verndarflokkur), samþykkt 19.6.2026.pdf |
|
|
|
| 11. 2609141 - Fyrirspurn - VR - LÍV og Fagfélög - Efnahagslegur stöðuleiki |
| Bæjarráð þakkar VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins, f.h. fagfélaganna, fyrir brýninguna um að sveitarfélagið leggi sitt að mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Sveitarfélagið hefur m.a. tekið ákvörðun um að hækka gjaldskrár sem falla undir A-hluta í rekstri Árborgar ekki umfram 2,5% og halda þannig áfram með að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf. Enn fremur er nægt framboð byggingarsvæða og byggingarhæfra lóða og nýbyggingar hafa verið í samræmi við áætlaða íbúafjölgun, þar á meðal hefur sveitarfélagið bæði keypt almennar íbúðir og samþykkt stofnframlög til kaupa nokkurra íbúða Bjargs íbúðafélag hses. undanfarin ár. Sveitarfélagið Árborg er að taka allt niður í 14 mánaða gömul börn inn á leikskóla haustið 2026, auk þess vinnur sveitarfélagið að því að fjölga möguleikum foreldra í að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, með heimgreiðslum til foreldra, en einnig eru enn starfandi dagforeldrar í sveitarfélaginu. |
| Samþykkt |
| Sveitarfélagið Árborg.pdf |
|
|
|
| 12. 2609115 - Skjálftinn - hæfileikakeppni ungmenna - framtíðarskipulag |
| Lagt fram til kynningar. |
| Tölvupóstur - Framtíðarskipulag Skjálftans Samstarf við sveitarfélög og næstu skref.pdf |
|
|
|
| 13. 2606025 - Fundartími bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030 |
| Lagt er til að áætlaður fundur bæjarráðs 24.september, falli niður vegna Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga. |
| Samþykkt |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 14. 2609008F - Ungmennaráð - 6/2026 |
|
|
|
| 15. 2609005F - Eigna- og veitunefnd - 3 |
|
|
|
| 16. 2609004F - Fræðslu- og frístundanefnd - 2 - 2026 |
|
|
|