Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 131

Haldinn í Jórusetri, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
30.05.2025 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
Formaður leitar afbrigða að taka á dagskrá tillögu frá fundi umhverfisnefndar um breytingu á opnunartíma gámasvæðisins. Er það borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2408199 - Kjaraviðræður frá 2024
Á 120. fundi bæjarráðs var bæjarstjóra falið að leggja fram minnisblað með tillögum fyrir bæjarráð um hvernig fjármagna eigi 280 milljóna kostnaðarauka vegna kjarasamninga KÍ umfram fjárhagsáætlun ársins 2025.
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir að fjármögnun viðbótarkostnaðar vegna kjarasamninga 2025 verði þannig háttað að 100 millj.kr. fari úr kjara- og veikindapotti og 186 millj.kr. fari af handbæru fé. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka að upphæð kr. 286 millj.kr. vegna kjarasamninga KÍ 2025 og leggja til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
2. 2505234 - Kirkjugarður á Selfossi - framtíðarstaðsetning
Erindi frá sóknarnefnd Selfosskirkju, dags. 20. maí, um mikilvægi þess að finna nýja framtíðarstaðsetningu fyrir kirkjugarð fyrir Selfosssókn.
Bæjarráð tekur undir erindi sóknarnefndar Selfosskirkju um mikilvægi þess að finna nýja framtíðarstaðsetningu fyrir kirkjugarð í Selfosssókn og felur bæjarstjóra að funda með sóknarnefnd.
Samþykkt
Erindir frá sóknarnefnd Selfosskirkju.pdf
3. 2505340 - Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald
Lögð fram endurskoðuð drög á samþykktum um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald og vísar málinu til umræðu og samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
4. 2504344 - Styrkbeiðni - sumarnám hjá Berklee College of Music
Styrkbeiðni frá Valdísi Jónu Steinþórsdóttur, dags. 28. apríl, þar sem óskað er eftir styrk til sumarnáms í Berklee College of Music.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við beiðninni að þessu sinni.
Samþykkt
Beiðni um styrk til sumarnáms.pdf
5. 2505251 - Orlof húsmæðra 2024
Skýrsla og ársreikningur orlofsnefndar Árnes- og Rangárvallasýslu árið 2024.
Lagt fram til kynningar. 
Skýrsla orlofsnefndar og ársteikningur 2024.pdf
6. 2410025 - Viðauki við fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Árnesinga 2025
Erindi frá skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga, dags. 21. maí, um nýjar innheimtutölur sveitarfélaganna frá Tónlistarskóla Árnesinga.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja viðbótarviðauka fyrir Tónlistarskóla Árnesinga fyrir árið 2025, kr. 10.166.475 kr.

Tekið er fyrir erindi Tónlistarskóla Árnesinga, þar sem óskað er eftir viðauka vegna kjarasamningsbundinna launahækkanna við tónlistarskólann að fjárhæð kr. 10.116.475,-. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka vegna málsins til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
7. 2504273 - Viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs 2025
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja viðbótarviðauka fyrir árið 2025 fyrir Brunavarnir Áressýslu bs. kr. 20.871.025,-
Tekið er fyrir erindi frá Brunavörnum Árnessýslu, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 20.871.025,- vegna kjarasamninga slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram viðauka vegna málsins til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt
8. 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki nr. 2.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 261.341.742,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 261.341.742,- og lækkar því rekstrarniðurstaða í A hluta um 774.890 þúsund krónur eftir að viðauki er samþykktur.
Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 261.341.742,- og verður því rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð neikvæð um 179.805 þúsund krónur.
Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé og útdeilingu úr veikinda- og kjarasamnings launapotti.
Samþykkt
9. 2302015 - Breyting á opnunartíma gámasvæðisins
Tillaga frá 22. fundi umhverfisnefndar frá 27. maí sl. liður 1. Breyting á opnunartíma gámasvæðisins.

Tillaga Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar að nýjum opnunartíma á gámasvæði Árborgar.

Nefndin mælir með því að lengja opnunartíma gámasvæðisins á miðvikudögum til kl. 18:00 og að sú breyting gildi til 30. september nk.

Lagt er til við bæjarráðs að samþykkja tillöguna.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um lengdan opnunartíma gámasvæðis á miðvikudögum til kl. 18:00 frá og með 4. júní nk. til og með 30. september. Tillagan rúmast innan fjárhagsáætlunar 2025.
Samþykkt
Fundargerðir
10. 2505019F - Eigna- og veitunefnd - 42
42. fundur haldinn 20. maí.
11. 2505017F - Fræðslu- og frístundanefnd - 20
20. fundur haldinn 21. maí.
Fundargerðir til kynningar
12. 2301137 - Fundargerðir stjórnar Arnardrangs hses 2022-2026
23. fundur haldinn 19. maí.
Ársreikningur 2024.

Lagt fram til kynningar.
23. stjórnarfundur Arnardrangs.pdf
13. 2504273 - Fundargerð aðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs 2025
Fundargerð vorfundar BÁ haldinn 28. apríl.
Lagt fram til kynningar.
Vorfundur Brunavarna Árnesinga bs 28.04.2025.pdf
14. 2504272 - Fundargerð aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs 2025
Fundargerð vorfundar TÁ haldinn 28. apríl.
Lagt fram til kynningar.
Vorfundur Tónlistaskóla Árnesinga 28.04.2025.pdf
15. 2504270 - Fundargerðir Héraðsnefndar Árnesinga 2025
34. fundur - vorfundur haldinn 28. apríl.
Lagt fram til kynningar.
34. fundur HÁ - vorfundur 28.04.2025.pdf
16. 2502026 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
979. fundur haldinn 16. maí.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 979.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:35 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica