Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 10

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
10.09.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn kl.8:10
1. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026
Árshlutauppgjör (6 mánaða) Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn og fer yfir uppgjörið.
Kynnt eru drög að 6 mánaða árshlutauppgjöri sveitarfélagsins. Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn og kynnir uppgjörið. Endanlegt uppgjör verður lagt fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri víkur af fundinum kl.8:30
2. 2601408 - Upplýsingar frá mannauðsdeild 2026
Bæjarstjóri kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út ágúst 2026.
Bæjarstjóri kynnir upplýsingar frá mannauðsdeild út ágúst 2026.
3. 2404042 - Starfshópur um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg - Erindisbréf
Drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið.
Samþykkt
Erindisbréf um starfshóp um frekari uppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg 7.sept´26.pdf
4. 2606321 - Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. september, ásamt drögum að stefnumörkun Sambandsins til næstu fjögurra ára sent til skoðunar.
Lagt fram til kynningar.
5. 2609051 - Þjónustusamningur við Dansakademíuna 2026
Minnisblað deildarstjóra frístundaþjónustu, dags. 7. september, ásamt drögum að þjónustusamningi við Dansakademíuna.
Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir fjármagninu í fjárhagsáætlun 2026.
Samþykkt
Fundargerðir
6. 2608022F - Stjórn Leigubústaða Árborgar ses - 30
30. fundur haldinn 2. september.
Fundargerðir til kynningar
7. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
1001. fundur haldinn 28. ágúst.
Lagt fram til kynningar
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1001.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:50 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica