30. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 13. desember 2023 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=ZEBt5fC99UU
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2311325 - Samkomulag um golfskála - Svarfhólsvöllur
Á 64. fundi bæjarráðs var samþykktur kaupsamningur á golfskála við Svarfhólsvöll. Samkomulagið var niðurstaða samningaumleitana vegna nauðsynlegrar hitaveitulagnar í gegnum land Laugardæla.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja samning um kaup á golfskálanum við Svarfhólsvöll.
Fyrir fundinum liggur jafnframt tillaga um gerð viðauka vegna málsins og verður hún afgreidd sérstaklega í dagskrálið 2. - 2306308 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2023
Viðauki 5.
Viðauki 6. - 21101800 - Deiliskipulagstillaga - Nabbi 3
Tillaga frá 18. fundi skipulagsnefndar, frá 28. nóvember, liður 7.
Deiliskipulagstillaga - Nabbi 3.
Lögð er fram að nýju tillaga að deiliskipulagi sem nær yfir lóðina Nabbi 3 (L232497) sem er 14225,4 m2 að stærð. Lóðin er staðsett í Sveitarfélaginu Árborg, í Sandvíkurhreppi hinum forna. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja frístundahús og gestahús. Deiliskipulagið er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036, skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna til auglýsingar í samræmi við 41 gr. skipulagslaga nr,123/2010, og mæltist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna til auglýsingar í samræmi við 41.gr skipulagslaga. - 2311332 - Hjalladæl - Deiliskipulag íbúðabyggðar Eyrarbakka
Tillaga frá 19. fundi skipulagsnefndar, frá 6. desember sl., liður 2. Hjalladæl - Deiliskipulag íbúðabyggðar Eyrarbakka.
Lögð er fram að nýju til samþykktar, breytt tillaga að deiliskipulagi íbúðabyggðar við Hjalladæl á Eyrarbakka. "Lýsing deiliskipulags hefur verið kynnt með auglýsingu og var það gert árið 2020. Bæjarstjórn Árborgar samþykkti deiliskipulagstillöguna til auglýsingar á fundi sínum 28.4.2021. Tillagan var auglýst 12.5.2021, og var athugasemdafrestur til 23.6.2021. Engar athugasemdir bárust."
Fram lögð breytt deiliskipulagstillaga nú, tekur til um 6ha svæðis, við norðanverða Túngötu og Hjalladæl á Eyrarbakka. Skipulagið nær til núverandi húsa norðan Túngötu og gerir ráð fyrir framlengingu á Hjalladæl. Gatan Hjalladæl lengist um 330m til vesturs og um 140m til austurs. Við það verða til 5 nýjar lóðir fyrir þriggja íbúða raðhús, 8 lóðir fyrir parhús og 6 lóðir fyrir einbýlishús, þ.e. 15 íbúðir í raðhúsum, 16 íbúðir í parhúsum og 6 íbúðir í einbýlishúsum, samtals 37 nýjar íbúðir.
Skilgreindar eru lóðir og byggingareitir á lóðum norðan Túngötu á milli lóða nr. 20 til 66 og gerð grein fyrir byggingarmagni á þeim lóðum, í töflu 1.1. á uppdrætti. Forsendur breytinga: Talið er æskilegt er að auka lóðaframboð á hagkvæmu íbúðarhúsnæði í þegar byggðum hverfum á Eyrarbakka og stuðla þannig að aukinni uppbyggingu en nokkuð er farið að bera á lóðaskorti. Til staðar eru tvö eldri deiliskipulög á skipulagssvæðinu (sjá yfirlitsmynd 02). Hið fyrra er deiliskipulag Svæðis 2 (gul brotin lína) sem samþykkt var í hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps 13. maí 1989 og hið síðara (appelsínugul brotin lína) er deiliskipulag fyrir Hjalladæl, samþykkt í bæjarstjórn Árborgar 14. júlí 2004. Bæði þessi deiliskipulög falla úr gildi við gildistöku þessa nýja deiliskipulags. Búið er að byggja á flestum lóðum hinna tveggja eldri deiliskipulaga sem nefnd eru hér að framan ef undan er skilið tvær vestustu lóðirnar norðan Túngötu á Svæði 2. Á þeim tveimur lóðum er nú lagt til að þær breytist úr eins og hálfrar hæðar einbýlishúsi í einnar hæðar raðhús. Nýtt deiliskipulag miðbæjar Eyrarbakka frá 2015 (blá brotin lína á yfirlitsmynd 02) gildir fyrir svæði sunnan Túngötu.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, sem gerir ráð fyrir íbúðabyggð (ÍB30). Nefndin telur ekki nauðsynlegt að kynna að nýju skipulagslýsingu, þar sem það liggja fyrir allar forsendur til samræmis við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna til auglýsingar í samræmi við 41 gr. skipulagslaga nr,123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna til auglýsingar í samræmi við 41.gr skipulagslaga. - 2310366 - Tryggvagata 15 - Breyting á deiliskipulagi 2023
Tillaga frá 19. fundi skipulagsnefndar frá 6. desember sl., liður 3. Tryggvagata 15 - Breyting á deiliskipulagi 2023.
Lagðar eru fram þrjár tillögur (A,B og C) að breytingu á gildandi deiliskipulagi skóla- og sundhallarreits við Tryggvagötu 15, á Selfossi.
Breytingin nær til nyrsta hluta sundhallarreits. Meginbreytingin fellst í að gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja tvær hæðir, í stað einnar hæðar sem var samþykkt í deiliskipulagsbreytingu með birtingu í B-deild stjórnartíðinda 23.9.2019.
Tillaga A og B er svipaðar, þ.e. báðar með gegnumakstri frá Tryggvagötu yfir á Bankaveg.
Tillaga A gerir réð fyrir einstefnuakstri en í tillögu B er gert ráð fyrir tvístefnuakstri og bílastaæði í bæði tillögu A og B halda sér sunnan við Sandvíkursetur. Í tillögu C er gert ráð fyrir svæði án gegnumaksturs, þ.e. göngugötu með stóru torgi auk trjágróðurs og gróðurbeðum. Samfara ofangreindum breytingum verða lóðamörk Tryggvagötu færð til norðurs, auk þess sem lóðarlína á austurmörkum Sandvíkurseturs eru færð nokkra metra til vesturs.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu A í samræmi við 43.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 og samþykkti að tillagan yrði auglýst skv.41 gr. sömu laga, og mæltist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna skv. 43.gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41.gr sömu laga. - 2311424 - Austurvegur 11 og Tryggvagata 8 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 19. fundi skipulagsnefndar frá 6. desember, liður 4. Austurvegur 11 og Tryggvagata 8 - Deiliskipulagsbreyting.
Breytingin tekur til verslunar- og þjónustulóðanna að Austurvegi 11 og Tryggvagötu 6 á Selfossi. "Markmið breytingarinnar er að heimila uppbyggingu í samræmi við stefnur og ákvæði sem sett eru fram í nýju Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Frá því að gildandi deiliskipulag var tekið í gildi hefur mikil uppbygging átt sér stað á Selfossi og er miðbæjarsvæði bæjarins í miklum vexti. Mikil eftirspurn er eftir verslunar- og þjónusturýmum á svæðinu en einnig eftir íbúðum þar sem íbúafjöldi hefur stóraukist á undanförnum árum. Austurvegur er mikilvæg miðja verslunar, þjónustu og stjórnsýslu í sveitarfélaginu og er lögð áhersla á að meðfram Austurveginum byggist upp aðlaðandi og líflegt bæjarumhverfi. Austurvegur 11 (1132 m2) er þegar byggð, þar stendur hús á einni hæð sem er nýtt undir verslunarstarfsemi. Núverandi nýtingarhlutfall lóðar er 0,6. Tryggvagata 8 (486 m2) er óbyggð lóð og með breytingunni er byggingarreitur lóðar felldur út. Heimilt verður að hafa bílastæði innan lóðar og er gert ráð fyrir aðkomu um lóð Austurvegar 11."
Breyting á gildandi deiliskipulagi fellst í að nýtingarhlutfall á lóðinni Austurvegur 11, er aukið úr 0,6, í 2,0 ofanjarðar og 1,0 neðanjarðar, sem er í samræmi við ákvæði um miðsvæði (M4), í gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Tryggvagata 6, breytist og verður Tryggvagata 8, og mun þjóna Austurvegi 11, sem bílastæðalóð. Heimilt verður byggja á Austurvegi 11, allt að 4 hæða hús, auk bílakjallara.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna í samræmi við 43.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 og samþykkti að tillagan yrði auglýst skv.41 gr. sömu laga, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna skv. 43.gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41.gr sömu laga, að teknu tilliti til nýrrar samþykktar Sveitarfélagsins Árborgar um samningsákvæði vegna aukins byggingarmagns og nýtingarhlutfalls. - 2311376 - Breyting á reglum um stuðnings og stoðþjónustu fyrir fullorðinna
einstaklinga
Tillaga frá 6. fundi velferðarnefndar frá 30. nóvember, liður 3. Breyting á reglum um stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðinna einstaklinga.
Lagt er fyrir Velferðarnefnd minnisblað um breytingar á reglum Árborgar um stoð- og stuðningsþjónustu fullorðinna.
Velferðarnefnd samþykkti breytingu á reglum um stoð- og stuðningsþjónustu fullorðinna hjá sveitarfélaginu Árborg. Velferðarnefnd lagði til við Bæjarstjórn að samþykkja breytinguna. - 2311369 - Reglur um daggæslu barna í heimahúsum
Tillaga frá 6. fundi velferðarnefndar, frá 30. nóvember, liður 4. Reglur um daggæslu barna í heimahúsum.
Lagt var fyrir minnisblað vegna breytinga á reglum sveitarfélagsins um daggæslu í heimahúsi. Velferðarnefnd samþykkti breytingu á reglum um daggæslu í heimahúsi fyrir sitt leyti og vísaði áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn. - 2311364 - Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar
Tillaga frá 9. fundi fræðslunefndar, frá 6. desember, liður 3. Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar.
Nýjar reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar lagðar fram til samþykktar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti reglurnar og vísar áfram til afgreiðslu bæjarstjórnar. - 2301250 - Reglur um þjónustu frístundaheimila 2023
Tillaga frá 9. fundi fræðslu- og frístundanefndar, frá 6. desember, liður 2. Reglur um þjónustu frístundaheimila 2023.
Fræðslu- og frístundanefnd óskaði eftir að liður 1.b.a. yrði skýrður betur. Að öðru leyti samþykkti nefndin reglurnar og vísaði til bæjarstjórnar til afgreiðslu. - 2312193 - Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Beiðni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um endurnýjun á samningi um samræmda móttöku flóttamanna í Árborg. - 2311161 - Gjaldskrár 2024
Síðari umræða.
1) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir frístundaheimili, frístundaklúbba og sumarfrístund 2024
2) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leikskólum Árborgar 2024
3) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fæði í grunnskólum Árborgar 2024
4) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Árborg 2024
5) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir bókasöfn Árborgar 2024
6) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir félagslega stuðningsþjónustu í Árborg 2024
7) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir leigubílaakstur aldraðra í Árborg 2024
8) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Grænumörk 2024
9) Tillaga að breytingu á gjaldskrá húseigna 2024
10) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sundstaði í Árborg 2024
11) Tillaga að breytingu á gjaldskrá íþróttahúsa í Árborg 2024
12) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir heimsendan mat í Árborg 2024
13) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir vatnsveitu 2024
14) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingardeild 2024
15) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir fráveitu (tæming rotþróa) í Árborg 2024
16) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir sorphirðu í Árborg 2024
17) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir gámasvæði Árborgar 2024
18) Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir Selfossveitur 2024
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrám fyrir fæði í grunnskólum og fyrir heimsendan mat í Árborg milli umræðna, ekki er breyting á öðrum gjaldskrám á milli umræðna.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrár fyrir árið 2024. - 2306129 - Fjárhagsáætlun 2024 - 2027
Síðari umræða. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar í janúar.
Lagt er til að fella niður fund 3. janúar og að næsti fundur bæjarstjórnar verði 17. janúar.
Fundargerðir - 2311025F - Bæjarráð - 64
64. fundur haldinn 30. nóvember. - 2311026F - Eigna- og veitunefnd - 25
25. fundur haldinn 28. nóvember. - 2311021F - Skipulagsnefnd - 18
18. fundur haldinn 29. nóvember. - 2311030F - Velferðarnefnd - 6
6. fundur haldinn 30. nóvember. - 2311034F - Ungmennaráð - 14/2023
14. fundur haldinn 31. október. - 2311035F - Ungmennaráð - 15/2023
15. fundur haldinn 21. nóvember. - 2312001F - Bæjarráð - 65
65. fundur haldinn 7. desember.