33. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn fimmtudaginn 1. febrúar 2024 í Grænumörk 5, Selfossi, kl. 11:00
https://www.youtube.com/watch?v=wEjGmBAKzcs
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2401318 - Lántökur 2024 - Sveitarfélagið Árborg
Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. fyrir allt að fjárhæð kr. 239.000.000,- til 15 ára í samræmi við skilmála láns til ársins 2039 með föstum verðtryggðum vöxtum eins og þeir verða á þeim tíma er lánið er tekið, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til endurfjármögnunar á afborgunum eldri lána á árinu hjá Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, bæjarstjóra, kt. 270272-5849, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. - 2401320 - Lántökur 2024 - Selfossveitur
Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Selfossveitna bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 17.000.000,- til 15 ára, í samræmi við skilmála láns til ársins 2039 með föstum verðtryggðum vöxtum eins og þeir verða á þeim tíma er lánið er tekið. Þá hefur bæjarstjórnin kynnt sér gildandi græna umgjörð Lánasjóðs sveitarfélaga og samþykkir að ráðstöfun lánsins falli að henni. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1.mgr. 69. gr, sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórnin lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar. Lánið er tekið til endurgreiðslu á eldri lánum og til að fjármagna framkvæmdir skv. samþykktri fjárhagsáætlun, sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Selfossveitna bs. til að selja ekki eignarhlut sinn í Selfossveitum bs. til einkaaðila, í heild eða að hluta, fram til þess tíma að lán þetta er að fullu greitt.
Fari svo að Sveitarfélagið Árborg selji eignarhlut í Selfossveitum bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Sveitarfélagið Árborg sig til þess að tryggja að samhliða yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, bæjarstjóra, kt. 270272-5849, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að samþykkja f.h. Sveitarfélagsins Árborgar veitingu ofangreindrar ábyrgðar og veðsetningu og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu ábyrgðar þessarar. - 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Viðauki nr. 1
Lagt til til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 1. - 2401307 - Tillaga um fjölgun kjördeilda í Sveitarfélaginu Árborg
Lagt er til að fjölga um eina kjördeild í Vallaskóla í komandi forsetakosningum og yrði hún nr. 5 og kjördeildin á Eyrarbakka yrði kjördeild nr. 7. - 2401310 - Reglur Bergrisans bs. um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi
stuðningsþarfir
Á 64. stjórnarfundi Bergrisans bs. voru nýjar reglur um stoðþjónustu samþykktar og lagt til að aðildarsveitarfélögin tækju reglurnar til afgreiðslu.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022 - 2026
Lagt er til að 1. fundur í febrúar verði feldur niður.
Fundargerðir - 2401008F - Menningarnefnd - 4
4. fundur haldinn 9. janúar. - 2312019F - Skipulagsnefnd - 20
20. fundur haldinn 10. janúar. - 2401012F - Bæjarráð - 70
70. fundur haldinn 18. janúar. - 2401005F - Velferðarnefnd - 7
7. fundur haldinn 18. janúar. - 2401020F - Bæjarráð - 71
71. fundur haldinn 25. janúar. - 2401025F - Bæjarráð - 72
72. fundur haldinn 26. janúar.