34. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar 2024 í Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
https://www.youtube.com/watch?v=my_i2xvBj1Q
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2007143 - Samkomulag um íbúðabyggð í Jórvík 1
Fyrir liggur viðauki við samkomulag Jórvík fasteigna ehf. og Selfossveitna um tengingu við heitt vatn vegna 255 íbúða á nánar tilgreindum lóðum til viðbótar við þær 102 sem áður hafði verið samið um. Stefnt er að því að tímasetning tenginga samræmist afhendingargetu Selfossveitna.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann. - 2311111 - Stekkholt - Deiliskipulag íbúðabyggðar
Tillaga frá 21. fundi skipulagsnefndar frá 31. janúar, liður 3. Stekkholt - Deiliskipulag íbúðabyggðar.
Lögð er fram deiliskipulagstillaga Eflu ráðgjafafyrirtækis, fyrir götumyndina Stekkholt 1 - 34 á Selfossi.
Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem einhverra hluta vegna hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Í einhverjum tilfellum hafa umræddar "lóðir" verið leiksvæði, sem í áranna rás hafa ekki verið nýttar. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heilstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig.
Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götumyndina á fyrrgreindum húsum við Stekkholt, og þá sérstaklega vegna lóðar nr. 22. Lóðin Stekkholt 22, er 1335m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja á umræddri lóð allt að 460m2 einbýlishús, með bílskúr, og er þá miðað við nýtingarhlutfallið 0.35. Mesta leyfilega vegghæð /mænishæð er 4.0m. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 21101230 - Eyrargata 35 - Smiðshús - Lóðamörk
Tillaga frá 21. fundi skipulagsnefndar, frá 31. janúar, liður 2. Eyrargata 35 - Smiðshús - Lóðamörk.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu að lóðarmörkum milli lóðanna Eyrargötu 31 (Hvoll) og 35 (Smiðshús) á Eyrarbakka. Fyrir liggur minnisblað frá Direkta Lögfræðiþjónustu dags. 14.11.2021, þar sem fram kemur að ekki finnist þinglýst gögn eða uppdrættir, sem sýni með óyggjandi hætti hvar lóðarmörk milli lóða liggi.
Lóðamörk fyrir Eyrargötu 35 - Smiðshús eru sýnd á meðfylgjandi lóðablaði, með eftirfarandi skýringum:
"Mörk milli punkta 1 - 7, rauð lína er staðfest en ágreiningur er um mörk annars vegar milli punkta 7 og 1 og hins vegar milli 7, 8, 9 og 1 og er sá ágreiningur gagnvart Eyrargötu 31. Ekki eru til staðfest lóðablöð af lóðunum við Eyrargötu 35 en lóðaleigusamningur frá 16 apríl 1957 (XIX-473) segir lóðina 400m² og lýsir mörkum. Lóðin er skráð 800m² hjá Þjóðskrá en án staðfestingar. Eyrargata 31 verður til samkvæmt lóðaleigusamningi frá 8. Ágúst 1925 (P-629) þar sem legu lóðar er lýst þannig að þau séu að vestanverðu milli Smiðshúsa og Akurs. Ekki er hægt að staðfesta endanleg mörk en Svf. Árborg sem eigandi landsins hefur ákveðið að lóðamörk fyrir Eyrargötu 35 landnúmer 165937 afmarkist af hnitpunktum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og þaðan í punkt 1 og verður flatarmál lóðarinnar þá 1470,7m²"
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkti framlagðan uppdrátt og einnig skýringar í texta, þ.e. að afmörkun lóðarinnar Eyragata 35, taki mið af hnitpunktum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og þaðan í punkt 1 og verður flatarmál lóðarinnar þá 1470,7m². Skipulagsfulltrúa var falið að senda lóðarhöfum Eyrargötu 31 og 35 niðurstöðu fundarins og afrit af uppdrætti ásamt skýringum. Þá yrði gerður lóðarleigusamningur við lóðarhafa Eyrargötu 35, með skírskotun í framlagðan uppdrátt.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja niðurstöðu skipulagsnefndar. - 2402091 - Beykiskógar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar frá 14. febrúar, liður 2. Beykiskógar - Óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Brynja Rán Egilsdóttir, f.h. lendeiganda, leggur fram tillögu að óverulegri breytingu á gildandi deiliskipulagi í landinu Beykiskógar L203553. Breytingin fellst í stækkun auk færslu á byggingarreit. Við færslu á byggingarreit, breytist lítilega aðkoma innan lóðar. Aðrir skipulagsskilmálar breytast ekki.
Skipulagsnefnd samþykkti óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna skv. sömu grein skipulagslaga, og fæli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til varðveislu og auglýsa í B-deild stjórnartíðinda. - 2402095 - Austurás L 208094 - Deiliskipulag frístundahúsa og aðstöðuhús
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar, frá 14. febrúar, liður 3. 2402095. Deiliskipulag frístundahúsa og aðstöðuhús.
Larsen hönnun og ráðgjöf leggur fram tillögu að deiliskipulagi í landi Austuráss L208094. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 4 frístundahúsum, auk aðstöðuhús, á 3ha spildu, norðan Votmúlavegar, við Lækjarmótaveg. Hámark byggingarmagns innan byggingarreits er 300m2, og er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 20 manns. Tillagan er í samræmi við kafla 4.2.1. í Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2308261 - Múli - Deiliskipulag 2 landspildna (Votmúli I)
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar frá 14. febrúar, liður 4. Múli - Deiliskipulag 2 landspildna (Votmúli I).
Pro-Ark teiknistofa, leggur fram tillögu að deiliskipulagi 2 spildna í landi Votmúla I L166214. Landið er skilgreint í Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 sem landbúnaðarland. Spildur eru hvor um sig 10ha að stærð og eru skilgreindir 2 byggingarreitir á hverri lóð, B1-Íbúðarhúsnæði og B2-Landbúnaðarhúsnæði. Á B1 er gert ráð fyrir byggingu tveggja hæða íbúðarhúss auk sambyggðrar eða stakstæðrar bílgeymslu, með allt að 8,5m hámarkshæð, og hámarksbyggingarmagni allt að 600m2. Auk þess er heimilt að byggja allt að 200m2 gesthús á einni hæð, auk garðhýsi/gróðurhús á einni hæð, allt að 200m2, fyrir heimaræktun. Hæð aukahúsa er allt að 5m. Á B2 er heimilt að byggja tvær landbúnaðarbyggingar með 8m hámarkshæð, samtals allt að 1000m2.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2312151 - Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 - Breytingar á ASK 2024
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar, frá 14. febrúar, liður 5. Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036 - Breytingar á ASK 2024.
Efla ráðgjafafyrirtæki f.h. Sveitarfélagsins Árborgar leggur fram skipulagslýsingu vegna nokkurra breytinga á gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036, í samræmi við 30.gr. og 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með skipulagslýsingu er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem snúa að stefnu aðalskipulagsbreytingar. Fyrirhugaðar breytingar snúa að þéttbýlinu Selfossi, fyrir utan að sett er inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns auk breytinga í landi Votmúla 1, Lóustaða 1,og Votmúla 3. Tillögur að skipulagsbreytingum verða eftir atvikum unnar og kynntar-auglýstar einar sér eða nokkrar saman í tillögu. Fyrirhugaðar breytingar eru gerðar vegna breyttra hugmynda sveitarfélagsins um landnotkun, vegna óska landeigenda/lóðarhafa og til að heimila nýtingu jarðhita, auk leiðréttinga og skörunar á landnotkunarflokkum.
Breytingarnar taka til eftirfarandi þátta:
1. Miðsvæðið M3 breytist í íbúðarbyggð. Heimilt verður að vera með hverfisverslun á lóðum næst hringtorgi Eyrarvegar og Suðurhóla.
2. Tjaldsvæði fyrir utan á. Unnið er að útfærslu á framtíðar tjaldsvæði. Gera þarf lítilsháttar breytingu á afmörkun afþreyingar- og ferðamannasvæðis vegna þess.
3. Borhola hitaveitu. Sett verður inn borhola hitaveitu suðvestan við SS.
4. Selfossflugvöllur. Vesturbraut flugvallarins verður stytt, tekin út sá hluti hennar sem er á landi í einkaeigu. Hindranaflötum breytt til samræmis.
5. Kjallarar á Selfossi. Heimilt verður að vera með kjallara á Selfossi. Gildir það líka um flóðasvæði, en mannvirki á slíkum svæðum skulu uppfylla tiltekin skilyrði ef gert verður ráð fyrir kjallara.
6. Lóðin Austurvegur 20 verður öll miðsvæði. Í dag er um helmingur hennar samfélagsþjónusta.
7. Verslunar- og þjónustusvæðinu VÞ8 og þeim hluta samfélagsþjónustu S5 sem nær til leikskólans Glaðheima verður breytt í miðsvæði.
8. Iðnaðarsvæðinu I1 verður að hluta til breytt í athafnasvæði AT2 og að hluta eða öllu leyti breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
9. Sett verður inn nýtt svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Stóra-Hrauns.
10. Íbúðarbyggðinni ÍB27 verður breytt til baka í athafnasvæði (AT5) eins og var í eldra skipulagi.
11. Á hluta af opnu svæði, norðan við Sunnulækjarskóla, verður heimilt að útbúa aðstöðu fyrir skátana.
12. Syðsti hluti Votmúla 1, L166214 og landspildna Lóustaðir 1, L229747 og Votmúli 3, L213238 verði breytt úr núverandi landnotkunarflokki L2, í L3.
Skipulagslýsing verður kynnt í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og með auglýsingu í Dagskránni auk þess að vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar arborg.is Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í Skipulagsgátt fyrir auglýstan tímafrest. Með kynningu skipulags- og matslýsingar er umsagnaraðilum, hagsmunaaðilum og almenningi gefinn kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar sem að gagni gætu komið við mótun breytingarinnar.
Óskað verður eftir umsögnum frá eftirtöldum aðilum:
Skipulagsstofnun
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
Vegagerðin
Veðurstofan
Flóahreppur
Sveitarfélagið Ölfus
Umhverfisstofnun
Minjastofnun
Náttúrufræðistofnun Íslands
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkti skipulagslýsingu Eflu dags. 9.2.2024, í samræmi við 30., og 36. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og mæltist til við bæjarstjórn Árborgar að samþykkja tillöguna í samræmi við ofangreindar greinar skipulagslaga, og fæli skipulagsfulltrúa að leita umsagnar Skipulagsstofnunar á skipulaglýsingu og kynna fyrir almenningi með auglýsingu. Einnig yrði leitað umsagnar hjá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Vegagerðinni, Veðurstofunni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Sveitarfélaginu Ölfuss og Flóahreppi. - 2311112 - Stjörnusteinar 7 - Heiðarbrún 2 - 8b - Deiliskipulag íbúðargötu
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar, frá 14. febrúar, liður 6. Stjörnusteinar 7 - Heiðarbrún 2-8b - Deiliskipulag íbúðargötu.
Lögð er fram deiliskipulagstillaga Landhönnunar, fyrir lóðirnar Stjörnusteinar 2 og lóðirnar Heiðarbrún 2-8b, á Stokkseyri.
Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem einhverra hluta vegna hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Í einhverjum tilfellum hafa umræddar „lóðir“ verið leiksvæði, sem í áranna rás hafa ekki verið nýttar. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heilstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum lóðum, Stjörnusteinar 2 og lóðirnar Heiðarbrún 2 - 8b, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036. Fyrir eru í gildi deiliskipulög fyrir lóðina Heiðarbrún 6 og Heiðarbrún 8, og munu þau falla úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2401322 - Álfsstétt 1 og Eyrargata 2 - Deiliskipulag íbúðarlóða
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar, frá 14. febrúar, liður 7. Álfsstétt 1 og Eyrargata 2 - Deiliskipulag íbúðarlóða.
Lögð er fram deiliskipulagstillaga Landform, fyrir lóðirnar Eyrargötu 2 og Álfsstétt 1 á Eyrarbakka.
Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem einhverra hluta vegna hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Í einhverjum tilfellum hafa umræddar "lóðir" verið leiksvæði, sem í áranna rás hafa ekki verið nýttar. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir Sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heilstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum húsum við Eyrargötu 2 og Álfsstétt 1 á Eyrarbakka. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036. Lóðin Eyrargata 2, er 845,2m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja á umræddri lóð allt að 253m2 einbýlishús, með eða án bílskúrs, og er þá miðað við nýtingarhlutfallið 0.3. Mesta leyfilega vegghæð verður 4m og hámarksmænishæð 6m. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036. Lóðin Álfsstétt 1, er 926,2m2 að stærð. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja á umræddri lóð allt að 278m2 einbýlishús, með eða án bílskúrs, og er þá miðað við nýtingarhlutfallið 0.3.
Mesta leyfilega vegghæð verður 4m og hámarksmænishæð 6m. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna, og fæli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2401323 - Búðarstígur 18 - Nesbrú 4 - Breyting á deiliskipulagi Búðarstíg,
Nesbrú, Túngötu og Bakkastígs
Tillaga frá 22. fundi skipulagsnefndar, frá 14. febrúar, liður 8. Búðarstígur 18 - Nesbrú 4 - Breyting á deiliskipulagi Búðarstígs, Nesbrú, Túngötu og Bakkastígs.
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting Landforms, á gildandi deiliskipulagi við Nesbrú og Búðarstíg á Eyrarbakka, sem samþykkt var þann 11. október 2006. Skipulagssvæðið afmarkast af götunum Nesbrú, Túngötu, Bakarístíg og Búðarstíg og er um 2.9 ha að stærð. Samkvæmt aðalskipulagi Árborgar 2020- 2036 nær deiliskipulagssvæðið til íbúðarbyggðar ÍB29 og er breytingin í samræmi við það. Markmið með deiliskipulagsbreytingu þessari er að efla möguleika á uppbyggingu svæðisins þar sem ný hús falli sem best að aðliggjandi byggð. Skilmálar taka mið af gildandi deiliskipulagi svæðisins og tillögu að verndarsvæði í byggð, þar sem áhersla er lögð á að ný hús innan verndarsvæðisins falli að ríkjandi byggingargerð, sem einkennast af gömlum stíl. Breytingin felst í að lóðirnar Búðarstígur 18 og 18a eru sameinaðar í eina og verða eftir breytingu Búðarstígur 18. Auk þess felst breytingin í færslu á byggingarreit á lóðinni Nesbrú 4, þar sem fyrir er íbúðarhús ásamt frístandandi bílskúr. Breyting og færsla er gerð á byggingarreit, sem nær nú umhverfis þegar byggðan bílskúr ásamt íbúðarhúsi. Lóðamörk eru teiknuð upp skv. ósamþykktu lóðarblaði frá Eflu, en breytingar eru gerðar á byggingarreit. Skilmálar fyrir nýtt hús á lóð Búðarstígs 18 haldast óbreyttir, þ.e. þar er hægt að reisa íbúðarhús skv. lið B. Ný einbýlishús og endurgerð eldri húsa, sbr. kafla 3.2 um húsagerðir í greinargerð gildandi deiliskipulags. Þar segir: Stærð húsa að hámarki 200 m² auk skúrbygginga allt að 25-40m². Hús geta verið 2 hæða með lágu risi, eða einnar hæðar með risi, þó ekki hærra en 7m. Þau geta verið byggð á hlaðinn eða steyptan grunn með gólfkóta allt að 1,3m yfir landhæð. Byggingarefni: steinsteypa, timburklæðning, báruð málmklæðning, hleðsluveggir s.s. hraunhleðslur eða aðrar steinhleðslur. Þak: bárujárnsklæðning, listað pappaþak, -zink- eða kopar, timbur. Þakhalli: 10°-70° risþak, brotið þak (Mansard) eða bogaþak (Samúelsþak). Að öðru leyti gilda skipulags- og byggingarskilmálar gildandi deiliskipulags sem samþykkt var 11. október 2006 og staðfest í B-deild 18. desember 2006.
Skipulagsnefnd samþykkir breytingartillögu í samræmi við 43.gr. skipulagalaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan yrði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mæltist til að bæjarstjórn Árborgar samþykkti tillöguna skv. 43.gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41.gr sömu laga. - 2302224 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs
Tillaga frá umhverfisnefnd frá 13. febrúar, liður 1. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs.
Kynnt endanleg útgáfa af samþykkt um meðhöndlun úrgangs eftir rýni og ábendingar Umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytisins.
Nefndin fór yfir ábendingar og samþykkti endanlega útgáfu af samþykktinni sem send yrði í Stjórnartíðindi.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja samþykktina. - 2311425 - Staða almenningssamgangna á Suðurlandi og til höfuðborgarsvæðis -
Áskorun
Á 19. fundi skipulagsnefndar, 6. desember sl. var tekin fyrir áskorun skipulagsfulltrúa í Hveragerði, Ölfusi og Árborg um stöðu almenningssamgangna á Suðurlandi og til höfuðborgarsvæðis.
Eftirfarandi var bókað á fundi skipulagsnefndar:
Skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins hefur um nokkurt skeið fundað með skipulagsfulltrúum nágrannasveitarfélaganna, Hvergerðisbæjar og sveitarfélagsins Ölfuss, og rætt sameiginleg hagsmunamál, þar á meðal samgöngumál og sérstaklega strætósamgöngur. Breytingar eru í vændum tengdar innleiðingar borgarlínunnar í Reykjavík og er mikilvægt í því sambandi að gæta að hagsmunum okkar sem búum á jaðri þess atvinnusvæðis sem stórhöfuðborgasvæðið er orðið. Skipulagsfulltrúi leggur fram sameiginlega áskorun skipulagsfulltrúa sveitarfélaganna Árborg, Hvergerðisbæjar og Ölfuss, þar sem stjórnvöld, sveitarstjórnir og viðeigandi stofnanir sem að málum koma eru hvött áfram til góðra verka í þágu almenningssamgangna, auk samráðs við sveitarfélög á Suðurlandi.
Skipulagsnefnd tók undir áskorun skipulagsfulltrúa í Hveragerði, Selfossi og Ölfus, um mikilvægi almenningssamgangna á svæðinu og eflingu þeirra.
Fundargerðir - 2401026F - Bæjarráð - 73
73. fundur haldinn 1. febrúar. - 2401029F - Eigna- og veitunefnd - 27
27. fundur haldinn 30. janúar. - 2401015F - Skipulagsnefnd - 21
21. fundur haldinn 31. janúar. - 2402005F - Bæjarráð - 74
74. fundur haldinn 8. febrúar. - 2402011F - Ungmennaráð - 16/2023
16. fundur haldinn 5. desember. - 2402012F - Ungmennaráð - 17/2023
17. fundur haldinn 9. janúar. - 2402013F - Ungmennaráð - 18/2023
18. fundur haldinn 23. janúar. - 2402014F - Ungmennaráð - 19/2023
19. fundur haldinn 6. febrúar. - 2402015F - Bæjarráð - 75
75. fundur haldinn 15. febrúar.