Sérstuðningur fyrir börn á grunnskólaaldri
Sveitarfélagið Árborg býður upp á sérstuðning fyrir börn á grunnskólaaldri með lögheimili í Árborg sem hafa skilgreindar fatlanir og þurfa fullan stuðning í daglegu lífi.
Stuðningurinn verður veittur á tímabilinu 15. til 26. júlí 2024 og verður veittur af starfsfólki frístundarþjónustu. Vikan fyrir hvert barn mun kosta 14.000 kr. Sótt er um stuðninginn í gegnum netfangið: sersumar@arborg.is
Sækja þarf um fyrir 25.03.2024
Í umsókninni þarf að koma fram ástæða umsóknar, staðfesting á fötlun og hvaða tímabili óskað er eftir.
Skilyrði fyrir þjónustu er að barnið þurfi stöðugt eftirlit, geti ekki nýtt sér hópastarf eða önnur sumartilboð, flóknar félagslegar aðstæður og fötlunargreining.