Alþjóðlegir sjálfboðaliðar blómstra í Árborg
Ungmenni sem komu hingað til lands í byrjun september 2025 til þess m.a. að vinna á frístundaheimilum í Árborg hafa á stuttum tíma orðið virkir þátttakendur í samfélaginu, þau tóku þátt í uppsetningu hjá Leikfélagi Selfoss og eru virkir þátttakendur í íslenskuhittingunum Komdu að tala íslensku á Bókasafni Árborgar Selfossi.

Við í Árborg höfum verið svo heppin síðustu ár að fá til okkar árlega sjálfboðaliða erlendis frá og í vetur hafa dvalið í sveitarfélaginu ungmenni frá Þýskalandi, Danmörk og Póllandi. Það eru þau Johann, Rebekka, Natasja og Natalia.
Fyrir áramót eyddu þau tíma á öllum frístundaheimilum Árborgar og kynntust starfinu og börnunum á hverjum stað.
Nú hafa þau raðað sér niður á frístundaheimilin og verða næstu vikur á staðnum til þess að vinna skemmtileg verkefni með börnum og starfsfólki.
Að sögn Ágústu Oddsdóttur sem er sérfræðingur á frístundaheimilinu Stjörnusteinar, þá hefur henni þótt gaman að hafa ungmennin í starfi og leik, hún segir að krakkarnir séu áhugasöm um og vefjist utan um sjálfboðaliðana og veiti þeim ómælda athygli.
Ungmennin séu frábær viðbót við starfið, dugleg með krökkunum, að föndrast og vinna í ýmsu skemmtilegu með þeim.


