Áríðandi tilkynning vegna félagslegrar stuðningsþjónustu í Árborg
Vegna mikilla forfalla og óviðráðanlegra aðstæðna mun það ekki nást að allir fái aðstoð við þrif fyrir jólin.
ATH - Þeir sem fá persónulega aðstoð (s.s. með lyf, bað, innkaup, klæðast/háttast o.s.frv.) eru í forgangi og sú aðstoð fellur ekki niður.
Haft verður samband við þjónustuþega varðandi forföll.
Með bestu kveðju og þökkum fyrir skilninginnStarfsfólk félagslegrar stuðningsþjónustu í Árborg