Auglýsing um framboðslista
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Kosið verður til bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Árborgar áður en framboðsfrestur rennur út sbr. ofangreindan tíma.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum í fundarsal á 3. hæð, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, föstudaginn 10. apríl 2026 frá klukkan 11:00 fyrir hádegi til klukkan 12:00 á hádegi.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 11 nöfn frambjóðenda og eigi fleiri en 22. Framboðslista skal fylgja yfirlýsing þeirra, sem á listanum eru, um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og lögheimili, til þess að enginn vafi leiki á því hver er í kjöri.
Hyggist stjórnmálasamtök sem ekki hafa skráðan listabókstaf samkvæmt auglýsingu um listabókstafi stjórnmálasamtaka nr. 54/2025 í B-deild Stjórnartíðinda, bjóða fram lista skulu þau um leið og framboðslista er skilað til yfirkjörstjórnar leggja þar fram beiðni um úthlutun listabókstafs og staðfestingu á heiti framboðs.
Framboðslistum skal og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í sveitarfélaginu, 80 meðmælenda hið fæsta og eigi fleiri en 160. Rafræn söfnun meðmæla fer fram á www.island.is Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar. Greina skal nafn, kennitölu og lögheimili meðmælenda.
Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs. Kjörstjórnarmenn í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og umdæmiskjörstjórnum geta ekki vera meðmælendur framboðs.
Með hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir eru umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skal fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista er að finna í reglugerð nr. 254/2024 https://island.is/reglugerdir/nr/0254-2024
Upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum og fylgigögnum er að finna á Skil á framboðum | Ísland.is
Selfossi, 23. mars 2026
Yfirkjörstjórnin í Sveitarfélaginu Árborg
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir

