Auglýsing um kjörfund vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 í Sveitarfélaginu Árborg
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Sveitarfélaginu Árborg verður haldinn laugardaginn 29. ágúst 2026.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
- Kosið er í sjö kjördeildum.
- Skipt er í kjördeildir eftir lögheimili þann 22. júlí 2026.
Kjörstaður í Vallaskóla, Sólvöllum 2, Selfossi (kjördeildir 1-5)
Aðalinngangur á kjörstað í Vallaskóla er frá Engjavegi.
Kjördeild 1
Kjósendur með lögheimili við götur á Selfossi sem byrja á bókstöfunum A - Á og Þ auk Háengi. Íslendingar búsettir erlendis.
Kjördeild 2
Kjósendur með lögheimili við götur á Selfossi sem byrja á bókstöfunum B – E auk Fossvegs.
Kjördeild 3
Kjósendur með lögheimili við götur á Selfossi sem byrja á bókstöfunum F – H en ekki við Fossveg og Háengi.
Kjördeild 4
Kjósendur með lögheimili við götur á Selfossi sem byrja á bókstöfunum J – R og ótilgreint lögheimili í sveitarfélaginu.
Kjördeild 5
Kjósendur með lögheimili við götur á Selfossi sem byrja á bókstöfunum S – V og í húsum á Selfossi sem bera sérstök heiti.

Kjörstaður í grunnskólanum á Stokkseyri, Stjörnusteinum 2 (kjördeild 6)
Kjördeild 6
Kjósendur með lögheimili á Stokkseyri, í dreifbýli við Stokkseyri og í póstnúmeri 801, en ekki í Tjarnabyggð.

Kjörstaður í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka, Búðarstíg 7 (kjördeild 7)
Kjördeild 7
Kjósendur með lögheimili á Eyrarbakka, í dreifbýli við Eyrarbakka og í Tjarnabyggð.

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá og í hvaða kjördeild á vefslóðinni www.kosning.is
Kjósendum er skylt að framvísa persónuskilríkjum með mynd á kjörstað.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi verður í Vallaskóla, Sólvöllum 2, Selfossi, sími: 833 5368
Selfossi, 19. ágúst 2026
Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Árborgar
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir

