Frítt fyrir öll börn í innanbæjarstrætó Árborgar (leið 75)
Nú í haust þegar vetraráætlun Strætó tók gildi urðu þær breytingar á innanbæjarstrætó Árborgar (leið 75) að viðbótarferð fyrir hádegi var fest í áætlun, stoppistöðum fjölgað, tíðni ferða eftir hádegi þétt og börn 17 ára og yngri þurfa ekki lengur að sýna kort til að geta nýtt innanbæjarstrætóinn frítt.
Þessar breytingar eru hluti af endurskipulagningu á leið 75 innan Árborgar til að bæta þjónustu almenningssamganga við íbúa. Viðbótarferðin fyrir hádegi sem kom inn í sumar er núna fest í áætlun og stoppistöðvum er fjölgað á Selfossi. Stoppar strætó t.d. núna í Larsensstræti við Bónus og pósthúsið. Tíðni aksturs eftir hádegi er þéttari til að auka möguleika barna að nýta strætóinn sem frístundaakstur milli byggðarkjarna en við þessa breytingu tekur innanbæjarstrætóinn í Árborg við frístundaakstrinum milli byggðarkjarna.
Til viðbótar við þessar breytingar geta nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands sem eru 18 ára eða eldri og búsettir í Árborg fengið kort sem veitir þeim frían aðgang að innanbæjarstrætó Árborgar. Hægt er að sækja um slík kort í þjónutuveri í síma 480-1900 eða arborg@arborg.is.
Næstu áramót bætist síðan við akstur á sunnudögum og tíðni ferða verður endurskoðu eftir ábendingum notenda.
Nýja tímatöflu má sjá hér að neðan en bætt hefur verið við nokkrum stoppistöðvum á Selfossi líkt og við Larsensstræti.
Á myndinni hér að neðan má sjá nýjar stoppistöðvar merktar inn með bláum hring. Leiðakerfið er einnig aðgengilegt inn á vef Strætó og nánari upplýsingar á heimasíðu Árborgar undir: Almenningssamgöngur
Tímatöflur fyrir leið 75 innan Árborgar sem tóku gildi mán. 17. ágúst 2020: