Bangsinn Bjarki byrjaður á frístundaheimilinu Bjarkarbóli
Frístundaheimilið Bjarkarból stóð fyrir bangsahátíð föstudaginn 20. mars en það var einnig fyrsti dagurinn hans Bjarka bangsa.
Frístundaheimilið Bjarkarból er nýjasta frístundaheimilið í Árborg og stendur við Stekkjaskóla. Á frístundaheimilinu Bjarkarbóli eru 124 þátttakendur sem sækja störf þangað daglega á aldrinum 6 - 9 ára.
Föstudaginn 21. mars byrjaði bangsinn Bjarki á frístundaheimilinu en eitt af hlutverkum Bjarka verður að taka þátt í aðlögun barna á stórum tímamótum í lífi þeirra þegar þau fara úr leikskóla í grunnskóla. Hann mun taka virkan þátt í starfi frístundaheimilisins, veita börnunum stuðning í að mynda tengsl og eignast vini, vinna saman sem hópur, vera jákvæðar fyrirmyndir og gefur börnunum knús ef þau þurfa á að halda.
Bjarki mun taka þátt í barnaráði ásamt börnum frístundaheimilisins. Dregið er í barnaráð hálfsmánaðarlega, það fundar í upphafi vikunnar, kemst að sameiginlegri niðurstöðu um hvað eigi að borða í síðdegishressingu og hvaða þema verður á föstudegi þeirrar viku. Öll börn í Bjarkarbóli fá að sitja einu sinni hvern vetur í barnaráði.

Gildi frístundaheimilisins eru gleði, vinátta, samvinna og frelsi og mun Bjarki klárlega gera starfið innihaldsríkara þar sem hann er alltaf glaður, góður vinur og mikill talsmaður þess að börn hafi frelsi til að deila hugmyndum sínum.
Jafnframt hefur verið gefin út bók um líf Bjarka sem börnin geta skoðað til að fá innsýn inn í líf hans. Bjarki verður sýnilegur í öllu starfi Bjarkarbóls og okkar trú er að hann eigi eftir að gera starfið innihaldsríkara og stuðla að betri innleiðingu barna í framtíðinni.





