Barnamenningarhátíð haldin í Árborg í fyrsta sinn
Sveitarfélagið Árborg efnir til ljósmyndakeppni og ljóðakeppni barna í tilefni af Barnamenningarhátíð sem haldin verður á Vor í Árborg, dagana 22. - 26. apríl 2026. Barnamenningarhátíð verður hluti af hinni árlegu menningarhátíð „Vor í Árborg“.
Börn verða virkir þátttakendur og slagorð barnamenningarhátíðar verður „fyrir börn og með börnum“. Börn munu sitja með fagaðilum í dómnefndum bæði ljósmynda- og ljóðakeppni, þau verða kynnar opnunar- og uppskeruhátíðar og verða stór hluti af öllum dagskrárliðum.
Ljósmyndakeppnin ber titilinn „Árborg með augum barna“ og óskum við eftir sjónarhorni barna á sínar heimaslóðir. Veitt verða verðlaun fyrir bestu mynd í flokki 5 – 8 ára, 9 – 12 ára og 13 – 17 ára. Ljóðasamkeppnin er ætluð nemendum í 8. - 10. bekk og nefnist „Með ljóð í hjarta“. Efnistök eru frjáls og er umsóknarfrestur í bæði ljósmynda- og ljóðakeppni á miðnætti 1. apríl 2026. Myndir og ljóð þurfa að berast á barnamenning@arborg.is

