Barnamenningarmánuður hjá frístundaheimilum Árborgar
Apríl var tileinkaður barnamenningu á frístundaheimilum Árborgar.
Ýmislegt skemmtilegt var gert í tilefni af Barnamenningarmánuði frístundaheimilanna.
Börnin fengu meira svigrúm til þess að velja ýmis verkefni og hvernig þau nálguðust verkefnin.
Haldin var kosning um það hvað ætti að bjóða upp á í síðdegishressingu ásamt því að börnin fengu að skoða barnamyndir af starfsfólki frístundaheimilanna og giska á hver væri hvað. Einnig fóru börnin í menningarferð á bókasafnið, annaðhvort innan skólans eða á Bókasafn Árborgar.
Þessa dagana er sýning á verkum barnanna á göngum sundlaugarinnar í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi.

