Berghólar fallegasta gatan í Árborg 2020
Umhverfisnefnd Árborgar hefur valið götuna Berghóla á Selfossi fallegustu götuna í sveitarfélaginu árið 2020.
Eggert Valur Guðmundsson, formaður bæjarráðs og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri afhjúpuðu skilti við götuna ásamt hluta af íbúum í dag, fimmtudaginn 17. september. Yngsti íbúi götunnar, Aron Elí Ásgeirsson dróg huluna af skiltinu "Fallegasta gatan" sem mun standa við Berghóla næsta árið.