Slysavarnardeildin Björg færir Strandheimum sjúkrakassa að gjöf
Föstudaginn 29. ágúst tók leikskólinn Strandheimar á móti veglegri gjöf frá Slysavarnardeildinni Björg á Eyrarbakka. Var gjöfin fjórir sjúkrakassar sem sérstaklega eru ætlaðir börnum.
Drífa Pálín Geirsdóttir kom fyrir hönd slysavarnardeildarinnar og færði nemendum og starfsfólki sjúkrakassana sem verða staðsettir inni á hverri deild leikskólans. Hún tilkynnti einnig að slysavarnardeildin myndi sinna því að fara reglulega yfir innihald sjúkrakassanna og fylla á þá.
Börnin voru spennt og kát að fá svona fallega sjúkrakassa að gjöf í veðurblíðunni úti á lóðum leikskólans.
Leikskólinn Strandheimar þakkar Slysavarnardeildinni Björg innilega fyrir veglega gjöf og um leið fyrir allan þann stuðning sem þau hafa fengið frá þeim á síðustu árum.