Borgarverk ehf skrifaði undir samning við Sveitarfélagið Árborg vegna endurgerðar gatna og veitna við Seljaveg og Tunguveg á Selfossi
Undirritaður var samningur þann 13. maí 2026 milli Borgarverks ehf og Sveitarfélagsins Árborg vegna endurgerð gatna og endurnýjunar veitna.
Verkið felur í sér endurgerð á götunum Seljavegi og Tunguvegi á Selfossi.
Endurnýja skal fráveitu-, vatnsveitu-, hitaveitu-, ídráttarrör, ljósastauralagnir og ljósastaura.
Verktaki skal einnig malbika götu, steypa kantsteina og malbika gangstéttar.
Helluleggja skal hraðahindranir, gera niðurtektir með doppuhellum og leiðarlínuhellum fyrir gangandi umferð.
Að lokum skal setja upp umferðarmerki og massa umferðarmerkingar. Einnig munu HS-Veitur leggja nýjar raflagnir í götuna.
Verklok eru áætluð 15. nóvember 2026.
Mannvirkja- og umhverfissvið

Mynd tekin við undirritun samnings 13.05.2026 frá vinstri talið:
Atli Marel Vokes - sviðsstjóri mannvirkja- og umhvefissviðs Árborgar og Auður Guðmundsdóttir sviðsstjóri Borgarverks ehf.

