Borun við Hótel Selfoss og Hellubakka
Eins og margir íbúar hafa tekið eftir þá er verið að bora við Hótel Selfoss við bakka Ölfusár.
Borverkið hefur gengið vel en það hefur staðið yfir í tæpa tvo mánuði
Búið er að bora fyrst fasa verkefnis en holan endaði á 888 metrum og er nú verið hitamæla hana og blásturprófa og í beinu framhaldi verður tekinn ákvörðun hvort ástæða sé til að dýpka holuna enn frekar og víkka fyrir vinnslu.
Þegar borverkinu lýkur við Hótel Selfoss er næsta borverk við Hellubakka á Selfossi
Sú hola verður boruð með svipuðum hætti og sú fyrri og má áætla að framkvæmdatími sé u.þ.b. 2 mánuðir og standi yfir frá seinni part mars og ljúki í lok maí.
Ef holurnar eru metnar vinnsluhæfar þá eru þær virkjaðar og þar sem um er að ræða innanbæjarholur er mikið lagt uppúr því að þær falli vel að umhverfi líkt og gert var í Jórútúni fyrir nokkrum árum.
Ef niðurstöður reynast jákvæðar er hér um að ræða mikinn happafeng fyrir samfélagið þar sem þörf fyrir heitt vatn eykst hratt í sveitarfélagi sem vex og dafnar.