Elvis skemmti þjónustunotendum í Árbliki dagdvöl
Skemmtikrafturinn Elvis kom í Árblik þann 19. desember síðastliðinn við mikla kátínu viðstaddra.
Starfsfólk Árbliks og Vinaminnis leggja mikið upp úr því að það sé ekki einungis notalegt í húsi heldur líka eitthvað skemmtilegt um að vera fyrir þjónustunotendur.


Í desember var eftirminnilegt uppbrot þegar eftirherman Elvis kom og tók lagið og skemmti þjónustunotendum og starfsfólki. Starfsfólk og þjónustunotendur frá Vinaminni mættu einnig á staðinn og var mikið stuð á mannskapnu. Eftir að Elvis hafði lokið gjörningnum var boðið upp á kaffi og skúffuköku.


