Endurnýjun á tröppum og aðkomu við Ráðhús Árborgar - ný hönnun tryggir betra aðgengi og bætt flæði
Í nokkur ár hefur staðið til að endurbæta og laga tröppur fyrir framan Ráðhús Árborgar og Bókasafn Árborgar Selfossi, ásamt því að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Uppfærð hönnun og útlit á tröppum fyrir framan Ráðhús Árborgar var kynnt á fundi Eigna- og veitunefndar Árborgar þann 27. janúar síðastliðinn.
Bæjarstjórn Árborgar hefur samþykkt að hefja endurbætur á tröppunum á þessu ári og voru uppfærðar tillögur að hönnun og útliti kynntar á fundi eigna- og veitunefnd í síðustu viku. Í tillögunni hefur legu rampsins verið breytt frá fyrri hönnun og staðsetning setþrepa endurskoðuð.
Rampurinn er hannaður samkvæmt leiðbeiningum Öryrkjabandalags Íslands um aðgengi fyrir öll. Með þessari útfærslu er tryggt gott og öruggt flæði gangandi vegfarenda í allar áttir, óháð því hvaðan þeir koma eða hvert þeir stefna. Hæðarsetningar þrepa hafa verið einfaldaðar og verða endanlegar mælingar teknar við lokahönnun.

Hluti af tröppunum hefur nú verið lokaður af til að tryggja betur öryggi vegfarenda en gert er ráð fyrir að framkvæmdin fari í útboð á næstu vikum og framkvæmdir geti hafist síðar í vor.
Nýju tillögurnar sýna bæði yfirlitsmynd og ásýndarmyndir sem skýra vel væntanlegt útlit framkvæmdanna. Markmiðið er að skapa vandaða, aðgengilega og fallega aðstöðu sem þjónar bæði íbúum og gestum sveitarfélagsins.




