Farsælt samstarf við Sigurhæðir
Soroptimistaklúbbur Suðurlands er frumkvöðull að stofnun Sigurhæða sem er þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi.
Um er að ræða fyrsta samhæfða úrræðið á þessu sviði hér á svæðinu
Sveitarfélagið Árborg er einn af fjölmörgum samstarfs- og styrktaraðilum Sigurhæða. Sveitarfélagið leggur til húsnæði undir starfsemina að Skólavöllum 1 á Selfossi og fjölskyldusvið tók virkan þátt í undirbúningi.
Margrét Anna Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, sat í verkefnastjórn og Heiða Ösp Kristjánsdóttir, deildarstjóri félagsþjónustu, kom einnig að undirbúningi þessa mikilvæga verkefnis. Lögð verður áfram áhersla á farsælt samstarf á milli fjölskyldusviðs Árborgar og Sigurhæða.
Full ástæða er til að hrósa Soroptimistaklúbbnum fyrir þetta mikilvæga framtak fyrir þolendur ofbeldis á Suðurlandi. Hjá Sigurhæðum verður í boði einstklings- og hópastarf, lögfræðiráðgjöf, lögregluþjónusta, sálfræðiþjónusta, markþjálfun og réttindafræðsla.
Notendur þjónustunnar sem eru af erlendum uppruna fá túlkaþjónustu. Öll þjónusta er endurgjaldslaus.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Sigurhæða
Sigurhæðir
Sími | 834 5566Netfang | sigur@sigurhaedir.is.