Fjárhagsáætlun Árborgar 2027 skilar jákvæðri rekstrarniðurstöðu og fasteignagjöld lækka
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun til 2030 fór fram í Bæjarstjórn Árborgar í dag, 18. nóvember. Áætlunin gerir ráð fyrir 85,8 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu í A- og B-hluta. Ytri efnahagsaðstæður, líkt og verðbólga, hafa talsverð neikvæð áhrif og mikilvægt að gæta áfram aðhalds í rekstrinum.
Lykiltölur úr fjárhagsáætlun 2027
-
Tekjur: um 23,6 ma.kr.
-
Gjöld: um 20,7 ma.kr.
-
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta: 85,8 m.kr.
-
Fjármagnsgjöld: 1,62 ma.kr.
-
Veltufé frá rekstri: um 2,5 ma.kr.
-
Heildarfjárfesting: 3,6 ma.kr.
-
Útsvarsprósenta: 14,97%
-
Skuldaviðmið: Áætlað 118,5% árið 2027 og fer lækkandi út áætlunartímabilið
Í fjárhagsáætlun 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B hluta, verði jákvæð sem nemur 85,8 milljónum og að EBITDA verði jákvæð um 2.894 milljónir. Veltufé frá rekstri er áætlað 2.470 milljónir í samstæðu sveitarfélagsins, framlegðarhlutfallið verði 12,2% og skuldaviðmiðið 118,5% sem er vel undir 150% viðmiði sveitarstjórnarlaga.
„Þetta er jákvæð niðurstaða og þrátt fyrir erfitt efnahagsumhverfi á Íslandi í dag er það skýrt markmið bæjarstjórnar að rekstur sveitarfélagsins verði í jafnvægi og haldið sé áfram að lækka álögur. Áætlunin sýnir áframhaldandi bata í rekstri en há verðbólga hefur töluverð neikvæð áhrif á rekstur sveitarfélagsins á yfirstandandi ári og horfur fyrir árið 2027.
Árborg tekur, ásamt öðrum sveitarfélögum virkan þátt í því mikilvæga verkefni að ná niður verðbólgu. Því eru hækkanir gjaldskráa ekki umfram 2,5% og margir liðir haldast óbreyttir milli ára. Um leið lækkum við álagningarhlutföll fasteignagjalda sem skilar sér í lægri gjöldum á íbúa og fyrirtæki. Samanlagt eru þessar tvær aðgerðir sem má áætla að skili um 150 milljónum í auknar ráðstöfunartekjur til íbúa og fyrirtækja í Árborg.
Óvissa um ytri efnahagsaðstæður kalla enn fremur á skynsama ákvarðanatöku sveitarfélagsins á næsta ári. Það er því mikilvægt að gæta aðhalds í rekstri og mun bæjarstjórn í samstarfi við starfsmenn halda áfram að leita leiða til að bæta reksturinn.
Sveitarfélagið Árborg er öflugt samfélag í örum vexti og það eru spennandi verkefni framundan. Vil ég enn og aftur þakka bæjarfulltrúum, starfsmönnum og íbúum fyrir þeirra óeigingjarna framlag, sem er að skila sér í stöðugri rekstri og auknum ávinningi til íbúa og fyrirtækja í Árborg okkar allra.“ sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.
Íbúafjölgun í Sveitarfélaginu Árborg heldur áfram og er áætlað að íbúafjöldinn verði í kringum 13.350 í lok árs 2026.

Gjaldskrár hækka ekki umfram 2,5% og álagning fasteignagjalda lækkar
Sveitarfélagið Árborg sýnir ábyrgð og tekur virkan þátt í baráttunni við verðbólguna. Gjaldskrár sveitarfélagsins haldast óbreyttar eða hækka ekki umfram 2,5% markmið Seðlabanka Íslands milli ára. Samhliða eru álagningarhlutföll fasteignagjalda lækkuð sem skilar sér í auknum ávinningi fyrir íbúa og fyrirtæki. Áætla má að samantekið skili þessar tvær aðgerðir um 150 milljónum í aukna ráðstöfun til íbúa og fyrirtækja í Árborg.
Helstu breytingar á fasteignagjöldum í áætlun 2027
-
Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,44% í 0,437%
-
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,63% í 1,55%
-
Vatnsgjald á atvinnuhúsnæði lækkar úr 0,162% í 0,15%
-
Fráveitugjald á atvinnuhúsnæði lækkar úr 0,17% í 0,158%
-
Vatns- og fráveitugjald á íbúðarhúsnæði helst óbreytt í 0,0806%
Forgangsverkefni að fjárfesta í innviðum
Umfangsmiklar framkvæmdir eru áætlaðar á næstu árum sem bæði er ætlað að tryggja innviði undir þjónustu sveitarfélagsins við íbúa og viðhalda eignum. Áætlað er að framkvæma fyrir um 3,5 milljarða á næsta ári og hefur eigna- og veitunefnd ásamt starfsfólki sveitarfélagsins unnið að forgangsröðun til að nýting fjármagns sé sem best.
Helstu framkvæmdir næsta árs eru eftirfarandi:
-
Viðbygging við leikskólann Jötunheima
-
3. áfangi Stekkjaskóla, bygging íþróttahúss
-
Endurnýjun á tröppum við Ráðhús Árborgar
-
Útisvæði Vallaskóla
-
Áframhaldandi endurnýjun á „gamla“ barnaskólanum á Eyrarbakka
-
Gatnagerð við Dvergasteina á Stokkseyri
-
Nýtt skátaheimili og fyrsti áfangi nýs tjaldsvæðis á Selfossi
Á árinu 2027 mun ný hreinsstöð hefja starfsemi og sett er aukið fjármagn í viðhald stofnana og gatna og göngustíga.

„Það eru spennandi uppbyggingarverkefni framundan sem munu skapa aukin verðmæti fyrir samfélagið og við göngum bjartsýn inn í næstu ár. Íbúum heldur áfram að fjölga þrátt fyrir krefjandi aðstæður sveitarfélagsins undanfarin ár. Sú þróun er nær dagleg staðfesting á uppbyggingu í sveitarfélaginu enda Árborg gott samfélag með öfluga þjónustu.“ segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri enn fremur.
Styrkjum grunnþjónustu við íbúa
Sveitarfélagið Árborg er fjölskylduvænt samfélag og verður haldið áfram að styðja og bæta grunnþjónustu við íbúa. Það endurspeglast meðal annars í auknum framlögum til grunnskóla Árborgar, félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz og þjónustu við eldri borgara.
Félagsmiðstöðin Zelsíuz hefur opnað nýtt útibú í Stekkjaskóla og verður heildarþjónusta félagsmiðstöðvarinnar rýnd sérstaklega með það að markmiði að sem best verði staðið að innleiðingu útibúa hennar í grunnskólum Árborgar á næstu árum.
Forvarnir og heilsuefling er mikilvæg í öllum aldurshópum og áfram verður unnið að þjónustu við aldraða í gegnum verkefnið „gott að eldast“. Stöðugildi tengiráðgjafa er tryggt áfram þótt ríkið hafi ákveðið að hætta stuðningi við þetta mikilvæga verkefni. Endurgjaldslaus heilsuefling fyrir 60 ára og eldri á Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri hefur sömuleiðis reynst gríðarlega vel og þátttaka farið fram úr björtustu vonum undanfarin ár.
Stigin verða stór skref á næsta ári í stafrænni vegferð með áframhaldandi innleiðingu nýs skjalakerfis og fjölgun stafrænna umsókna um þjónustu. Stefnt er að aukinni notkun gervigreindar í starfsemi sveitarfélagsins og samhliða gerðir verkferlar um mikilvæga öryggisþætti. Unnið er að nýrri vefsíðu Árborgar sem stefnt er á að komist í gagnið á árinu 2027. Allt eru þetta aðgerðir sem eiga bæði að nýtast starfsfólki við vinnu og veita íbúum betri þjónustu.
Fylgiskjöl:
Greinargerd-fjarhagsaaetlunar-2027_fyrri-umraeda
Sveitarfelagid-Arborg_Fjarhagsaaetlun-2027-2030-birt_Fyrri-umraeda
Nánari upplýsingar vegna fjárhagsáætlunar Árborgar 2027 veitir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri.


