Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborg 2023 - 2026
Bæjarstjórn Árborgar kjörtímabilið 2022 - 2026 leggur nú þann 14. desember fram sína fyrstu fjárhagsáætlun í bæjarstjórn. Um leið er lögð fram þriggja ára áætlun í samræmi við 62. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, fyrir A-hluta og samantekinn reikning fyrir A- og B hluta fyrir árin 2023–2026.
Fjárhagsáætlunin er lögð fram til seinni umræðu með halla upp á kr. 1.855.666.000 kr. sem er ekki ásættanlegt en endurspeglar því miður stöðu sveitarfélagsins í dag og það verkefni sem liggur fyrir bæjarstjórn og starfsmönnum. Unnið verður áfram á nýju fjárhagsári í hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir 100 millj.kr. hagræðingarkröfu á árinu 2023 ásamt því að skapa frekari tækifæri til aukinnar tekjuöflunar á næstu árum.
Góð samvinna við gerð fjárhagsáætlunar
Fjárhagsáætlun ársins 2023 var unnin sameiginlega af öllum bæjarfulltrúum og var samstarfið afar ánægjulegt. Fyrir það ber að þakka. Þá vill bæjarstjórn þakka fjármálastjóra og öllum starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir framúrskarandi gott samstarf, útsjónarsemi, aðhald og metnað við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023. Áskorunin er mikil en með samstilltum hóp starfsmanna sveitarfélagsins og kjörinna fulltrúa erum við bjartsýn á að ná utan um reksturinn á næstu árum.
Rekstur A-hluta sveitarfélagsins hefur verið neikvæður til fjölda ára og telst að óbreyttu ekki fjárhagslega sjálfbær. Skuldsetning er mikil, framlegð of lág og veltufé frá rekstri dugir ekki fyrir afborgunum lána. Bæjarstjórn Árborgar er meðvituð um fjárhagsstöðuna og nauðsyn þess að gripið sé til aðgerða. Setja þarf raunhæf markmið til næstu ára svo Sveitafélagið Árborg nái efnahagslegri sjálfbærni.
Fjármálaáætlun til 10 ára
Bæjarstjórn Árborgar vinnur nú með KPMG að því að skilgreina aðgerðir og eftirfylgni til að ná settu marki. Mikilvægt er að horfa til langs tíma og setja skýra stefnu en vinnan miðar að 10 ára fjármálaáætlun. Markmið næstu ára eru að sveitarfélagið skili jákvæðri afkomu, tryggja vöxt og sjálfbæran rekstur til framtíðar. Rýna þarf áætlanir, möguleika til úrbóta, setja skýr markmið og skilgreina helstu áherslur þannig að allar aðgerðir og ákvarðanir í framhaldinu styðji við markmiðin.
Fjárhagsáætlun 2023 miðar fyrst og fremst að því að gæta aðhalds og ná utan um reksturinn til lengri tíma. Hagræðingarkrafa var á alla málaflokka en bæjarstjórn lagði áherslu á að verja starf velferðarþjónustunnar og aðra grunnþjónustu við fjölskyldur í sveitarfélaginu. Við áætlun á útsvari er horft til væntanlegra útsvarstekna, atvinnuleysis, launaþróunar og fjölgunar íbúa en gert er ráð fyrir um 5% íbúafjölgun á ári til ársins 2026.
Framkvæmdaáætlun styðji við uppbygginguna
Umfangsmiklar framkvæmdir verða áfram í Árborg á næsta ári til að tryggja að grunn innviðir mæti þörfum íbúa og fyrirhugaðri fjölgun. Því miður þarf að færa einhverja framkvæmdir til milli ára í þriggja ára áætlun en af nýjum verkefnum á framkvæmdaáætlun ársins 2023 ber hæst bygging 2.áfanga Stekkjaskóla, framkvæmdir við opnun fjögurra leikskóladeilda við Stekkjaskóla sem eru útibú frá Jötunheimum, hreinsistöð í Geitanesi, gatnagerð í Bjarkarlandi og Víkurheiði ásamt jarðborun Selfossveitna eftir heitu vatni. Unnið verður áfram markvisst að viðhaldi fasteigna og gatnakerfis í öllum byggðakjörnum sveitarfélagsins en mikilvægt er að sinna viðhaldi þótt fjárhagsstaðan sé erfið.
Drögum úr hækkun fasteignagjalda
Bæjarstjórn Árborgar mun í fjárhagsáætlun koma til móts við íbúa og fyrirtæki vegna verulegrar hækkunar á fasteignamati fyrir árið 2023. Fasteignagjöldin samanstanda af fasteignaskatti, lóðarleigu, fráveitu- og vatnsgjaldi og sorphirðugjaldi. Bæjarstjórn ákvað að lækka ekki fasteignaskattsprósentuna vegna tengingar hennar við framlög Jöfnunarsjóðs heldur lækka fráveitu- og vatnsgjaldið til að milda heildarhækkun fasteignagjalda um að jafnaði 10-20 prósentustig.
Við útreikning framlaga frá Jöfnunarsjóði er tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts á árinu 2022. Sveitarfélög eiga erfitt með að lækka prósentu fasteignaskatta því þá lækka framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði, sem þýðir tvöföld tekjuskerðing. Sveitarfélagið Árborg mun því mæta hækkun fasteignamats með lækkun annarra gjalda. Þannig verður vatnsgjaldið lækkað úr 0,172% í 0,15% og fráveitugjaldið lækkar úr 0,251% í 0,10% fremur en að snerta fasteignaskatts prósentuna beint. Sveitarfélagið kemur þannig til móts við íbúa og fyrirtæki auk þess sem greiðslum verður dreift á ellefu mánuði í stað tíu áður, til að létta á mánaðarlegri greiðslubyrði. Með verulegri lækkun á fráveitu- og vatnsgjaldi vill bæjarstjórn koma til móts við íbúa og fyrirtæki vegna hækkunar á fasteignamati fyrir árið 2023.
Lóðarleiga mun haldast óbreytt milli ára. Sorphirðugjaldið hækkar um 9% milli ára vegna aukinna útgjalda við sorphirðu. Það er þó fyrirséð að endurskoða þarf sorphirðugjaldið á árinu í takti við þróun sorphirðu og ný lög sem taka gildi um næstu áramót. Útsvar fyrir árið 2023
verður óbreytt eða 14,52% og almennar gjaldskrárhækkanir verða að jafnaði 9% sem er í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar.
Margir óvissuþættir á næsta ári
Óvissuþættir fyrir komandi ár eru nokkrir og ber fyrst að nefna kjarasamninga. Nýir kjarasamningar hjá flestum félögum á almennum markaði hafa verið undirritaður við samtök atvinnulífsins og er gildistími samninganna frá 1. nóvember til 31. janúar 2024. Flestir kjarasamningar á opinbera markaðnum gilda fram til 1. mars 2023 en samningar við kennarafélögin gilda til 1. september 2023.
Verðlagsforsendur hafa breyst mikið og verðbólga á árinu var meiri en gert var ráð fyrir ásamt hækkandi vöxtum. Þessar ytri aðstæður hafa áhrif á rekstur sveitarfélagsins og vonandi stenst þjóðhagspá Hagstofunnar sem spáir lækkandi verðbólgu strax á næsta ári.
Fyrir utan þær augljósu hörmungar sem innrás Rússa í Úkraínu hefur í för með sér þá hafa ófyrirséðar hækkanir á orkuverði og hrávöru frá Evrópu efnahagslegar afleiðingar á öll ríki heims. Þá hefur málaflokkur fatlaðs fólks ekki enn fengið leiðréttingu frá ríkinu en vonir standa til að sú leiðrétting komi að einhverju leiti inn á næsta ári.
Það dylst engum að aðstæður eru erfiðar og mikilvægt að halda áfram að leita leiða til hagræðingar. Bæjarfulltrúar og starfsfólk sveitarfélagsins munu taka höndum saman við það verkefni en því miður þarf mögulega að taka erfiðar ákvarðanir sem dregið gætu úr þjónustu sveitarfélagsins til skamms tíma.
Það má þó ekki gleyma þeim tækifærum sem eru í samfélaginu. Fjöldi íbúða er í byggingu, miðbær Selfoss heldur áfram að byggjast upp og fjölbreytt fyrirtæki sýna sveitarfélaginu áhuga sem mun fjölga atvinnutækifærum á svæðinu. Við höldum því ótrauð áfram enda er bjart fram undan í Sveitarfélaginu Árborg.
Helstu útskýringar á lykiltölum og einstaka málaflokkum
Útsvar og fasteignagjöld:
- Útsvarsprósenta fyrir árið 2023 verði 14,52%
- Undir fasteignagjöldunum helst prósenta fasteignaskatts óbreytt fyrir A, B og C flokk. Almenn lóðaleiga er óbreytt 1,0% og leiga af ræktunarlandi 3,0%. Vatnsgjald lækkar úr 0,172% í 0,15% og fráveitugjald lækkar úr 0,251% í 0,10%. Sorphirðugjald hækki um 9%.
Afslættir
- Sérstakur afsláttur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega verður veittur við álagningu fasteignaskatts og fráveitugjalds á íbúðarhúsnæði skv. reglum þar um.
- Veittir verði afslættir til félaga sem starfa að menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundarstarfsemi eða vinna að mannúðarstörfum og reka eigið húsnæði eða leigja til lengri tíma en eins árs fyrir starfsemina skv. reglum þar um.
Verðlag og aðrar forsendur:
- Verðbólga 5,6%
- Íbúafjöldi: Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa sem nemur 5% á ári
Skuldahlutfall og viðmið
Reiknað skuldaviðmið samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
- 2023 / 163,2%
- 2024 / 174,4%
- 2025 / 178,2%
- 2026 / 177,5%
Skuldahlutfall - heildarskuldir sem hlutfall af tekjum
- 2023 / 187,5%
- 2024 / 197,7%
- 2025 / 199,3%
- 2026 / 196,8%