Fjárhagsáætlun Svf. Árborgar lögð fram til fyrri umræðu
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2024 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, miðvikudaginn 29. nóvember.
Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B hluta samstæðunnar verði jákvæð sem nemur 30 milljónum og að EBITDA verði jákvæð um 3.090 milljónir. Veltufé frá rekstri er áætlað 2.276 milljónir á samstæðu sveitarfélagsins og framlegðarhlutfallið verði 16,4 prósent sem er hækkun um 9,5 prósent frá útkomuspá fyrir árið 2023.
Þrátt fyrir jákvæða niðurstöðu og þann góða árangur sem er að nást er það ekki í fullu samræmi við samþykkt markmið aðgerðaráætlunar, sem send var til Eftirlitsnefndar sveitarfélaga og Árborg er skuldbundið af á grundvelli samnings þess við Innviðarráðherra, dags. 27. mars 2023. Það verkefni liggur áfram fyrir bæjarstjórn og starfsmönnum milli umræðna með það markmið að ná fram frekari hagræðingu og aukinni tekjuöflun á næstu árum.
Í fjárhagsáætlun 2024 er áfram lögð áhersla á að standa vörð um grunnþjónustu við íbúa. Mennta- og velferðarmál og áframhaldandi innleiðing laga um þjónustu í þágu farsældar barna eru því í lykilhlutverki. Frístundastarf barna er þar á meðal og verður áfram í boði frístundastyrkur fyrir börn búsett í Árborg. Sú breyting verður þó gerð að 4 ára börn eigi líka rétt á frístundastyrk. Börn 4-5 ára fái þá frístundastyrk að upphæð 20 þúsund en 6 - 17 ára að upphæð 45 þúsund.
Hluti af aðgerðum Bæjarstjórnar Árborgar til að ná þeim fjárhagslegu markmiðum sem koma fram í samningi sveitarfélagsins við Innviðaráðuneytið felur því miður í sér hækkun á hluta fasteignagjalda á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði ásamt álagi á hámarksútsvar upp á 1,474 prósentustig árið 2024. Almennar gjaldskrárhækkanir sveitarfélagsins eru síðan í takti við forsendur fjárhagsáætlunar.
Fjárfest í mikilvægum innviðum
Sveitarfélagið mun áfram framkvæma til að tryggja að grunn innviðir mæti þörfum íbúa. Í fjárfestingaáætlun ársins 2024 er forgangsraðað í þeim tilgangi að draga úr fjárþörf og lántökum en haldið er áfram með þær fjárfestingar sem sveitarfélagið er skuldbundið til að klára. Meginreglan verður sú að farið verður í fjárfestingar sem stuðlað að auknum tekjum í takt við það fjármagn sem aflað verður með sölu eigna. Í undirbúningi er síðan nánari úttekt á rekstri B-hluta fyrirtækja sveitarfélagsins þar sem mat verður lagt á fjárhagslega sjálfbærni þeirra til framtíðar og ákvarðanir teknar um framtíðarfyrirkomulag á rekstri þeirra.
Gert er ráð fyrir 3,0 % fjölgun íbúa í Árborg og miðað við uppfærða spá þá orðnir um 12.200 í lok árs 2024. Með fjárhagsáætlun 2024 er einnig lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2025. 2026 og 2027 til fyrri umræðu.
Áfram gakk
Bæjarstjórn Árborgar gerir sér grein fyrir því að þær álögur og gjaldskrárhækkanir sem hér eru kynntar eru verulega íþyngjandi fyrir íbúa. Mikilvægt er því að hafa í huga að aðgerðir líkt og aukið álag á útsvar er aðeins hugsuð til tveggja ára. Á sama tíma vinnur bæjarstjórnin hörðum höndum að því að rýna áfram reksturinn til að tryggja aukna framlegð svo hægt sé að standa undir þeim skuldbindingum sem sveitarfélaginu ber að veita. Samhliða sölu eigna verður unnið að þeim fjárfestingum sem stuðla að tekjuaukningu auk þess sem hugað verður að viðhaldi og innviðum í ört vaxandi samfélagi.
“Fjárhagsáætlun 2024 miðar fyrst og fremst að því að gæta aðhalds, auka tekjur og ná utan um reksturinn til lengri tíma. Áfram er hagræðingarkrafa á alla málaflokka en lögð er áhersla á að verja velferðarþjónustuna og aðra grunnþjónustu við fjölskyldur. Engu að síður þarf mögulega að taka óvinsælar ákvarðanir sem dregið gætu úr þjónustu sveitarfélagsins til skamms tíma,” segir Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar.
Nánari útskýring á fasteignagjöldum, útsvari og gjaldskrárhækkunum
- Fasteignagjöld skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, fráveitu- og vatnsgjalda og sorphirðugjalda.
- Fasteignaskatturinn hækkar á milli ára um 0,046 prósent af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og 0,05 prósent af atvinnuhúsnæði. Lóðarleiga mun haldast óbreytt milli ára.
- Fráveitugjaldið er 0,10 prósent af fasteignamati en hækkar í 0,18 prósent árið 2024 ásamt því að vatnsgjald fer úr 0,15 prósentum í 0,172 prósent.
- Sorphirðugjaldið hækkar um 3% milli ára sem er undir almennu verðlagi en vel hefur gengið að innleiða nýtt flokkunarkerfi. Góð flokkun íbúa skilar sveitarfélaginu auknum tekjum úr úrvinnslusjóði sem um leið hefur jákvæð áhrif á sorphirðugjaldið.
- Útsvar fyrir árið 2024 verður hækka í 16,214 prósent. Almennar gjaldskrárhækkanir verða 7,7 prósent sem er í samræmi við forsendur fjárhagsáætlunar.