Fjölmenning hjá Frístundaheimilum Árborgar
Febrúarmánuður var tileinkaður fjölmenningu og unnu börnin verkefni tengd fjölmenningu í heila viku.
Frístundaheimilin í Árborg hófu í síðasta mánuði að vinnu með þemamánuði þar sem áhersla er lögð á fjölbreytt og skapandi verkefni tengd fyrirfram ákveðnu þema.

Meðal verkefna í febrúar var fjölmenningarbakstur, fánagerð, og kynning á mismunandi tungumálum og stafrófum þeirra. Unnið var með tónlist á mismunandi tungumálum auk ýmissa annarra verkefna. Börnin fengu tungumálakennslu frá starfsfólki, lásu bækur um fólk af fjölbreyttum uppruna og á mörgum tungumálum.
Frístundaheimilin í Árborg endurspegla fjölbreytt samfélag, en þar eru bæði starfsfólk og börn frá yfir tíu mismunandi löndum.
Þemavinnan tókst afar vel og fengu börnin tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum.
Þema marsmánaðar er listsköpun og má búast við því að glæsileg listaverk líti dagsins ljós á frístundaheimilum Árborgar á næstu vikum.

