Flakkandi Zelsíuz fer af stað í Árborg - nýtt úrræði fyrir ungmenni
Í dag hefst formlega starfsemi Flakkandi Zelsíuz í Árborg – nýtt framtak á vegum félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz.
Markmið verkefnisins er að mæta ungmennum þar sem þau eru stödd, styrkja verndandi þætti í nærumhverfi þeirra og efla tengsl við samfélagið.
Verkefnið byggir á vettvangsstarfi og sameinar stuðning og uppbyggilega viðburði á þeim stöðum þar sem ungmenni koma saman. Með því er stefnt að því að draga úr áhrifum áhættuþátta og styðja við félagslega stöðu unglinga, svo þau geti notið æsku sinnar í öruggu og styðjandi umhverfi.
Starfsfólk Zelsíuz mun ferðast um bæinn í 9 manna bíl félagsmiðstöðvarinnar og klæðist bláum jökkum, svo þau séu auðþekkjanleg og aðgengileg ungmennum og öðrum íbúum. Starfið fer fram á kvöldin, frá fimmtudegi til laugardags, á tímabilinu 12. júní til 19. júlí.
Samfélagslögreglan mun taka þátt í vöktum verkefnisins um helgar, sem eykur öryggi og sýnileika verkefnisins í samfélaginu.
Sérstök áhersla verður einnig lögð á viðveru á bæjarhátíðum í Árborg, eins og Kótelettunni og Sumar á Selfossi, þar sem ungmenni koma saman og mikilvægt er að bjóða þeim upp á jákvæða og styðjandi nærveru.
Verkefnið hlaut veglegan styrk frá Kvenfélagi Selfoss, sem gerir félagsmiðstöðinni kleift að efla búnað og aðstöðu til að sinna þessu mikilvæga starfi. Þessi stuðningur er afar dýrmætur og skiptir sköpum fyrir það að geta mætt ungmennum með fagmennsku og hlýju.