Forvarnardagur í Árborg 2026
Forvarnardagur Árborgar var haldinn miðvikudaginn 21. október sl. og tókst afar vel. Deginum er ætlað að efla forvarnarstarf meðal ungmenna og skapa vettvang fyrir fræðslu, samtal, samveru og jákvæð tengsl.
Forvarnardagurinn er hluti af landsverkefni sem haldið var víða um land 14. október sl. að frumkvæði forseta Íslands, í samstarfi við Embætti landlæknis, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta.
Að venju stóð forvarnarhópur Árborgar fyrir dagskrá dagsins í samstarfi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES), Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Stekkjaskóla, Ungmennafélag Selfoss og félagsmiðstöðina Zelsíuz. Öllum nemendum í 9. bekk grunnskólanna í Árborg var boðið að taka þátt í sameiginlegri dagskrá.
Dagurinn hófst með setningu í Selfosshöllinni þar sem Tómas Smári Guðmundsson, kennari við Vallaskóla, ávarpaði ungmennin. Að setningu lokinni fóru nemendur í hópum á milli níu fjölbreyttra stöðva þar sem áhersla var lögð á fræðslu, þátttöku og verkefni með forvarnargildi.
Á stöðvunum áttu nemendur meðal annars opið samtal við lögregluna um rafknúin ökutæki og fengu fræðslu frá skólahjúkrunarfræðingum um nikótín og áhrif þess. Félagsmiðstöðin Zelsíuz stóð fyrir verkefnavinnu og Exið vann með samskipti og samvinnu í gegnum hópefli og fræðsluleiki í Pakkhúsinu. Leynileikhúsið bauð nemendum upp á fjölbreytta og skemmtilega hópeflisleiki. Þá tóku Björgunarfélag Árborgar, Hornið, FabLab og Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss einnig þátt í dagskránni með fjölbreyttum verkefnum og kynningum fyrir ungmennin.
Að dagskrá lokinni var öllum þátttakendum boðið í pylsupartý við Tíbrá þar sem góð stemning og gleði ríkti.
Forvarnardagurinn er mikilvægur liður í forvarnarstarfi sveitarfélagsins. Með deginum er lögð áhersla á að efla samstöðu ungmenna, skapa jákvæðar upplifanir og styrkja þau í að taka upplýstar ákvarðanir og tileinka sér heilbrigðan lífsstíl.
Forvarnarhópur Árborgar þakkar öllum samstarfsaðilum og þátttakendum kærlega fyrir framlag þeirra til dagsins. Sérstakar þakkir fá ungmennin sjálf fyrir frábæra þátttöku og jákvæðni sem átti stóran þátt í að gera daginn bæði skemmtilegan og eftirminnilegan.

