Fræðsluferð til Álaborgar veitti innsýn og nýjar hugmyndir
Dagana 22. – 26. apríl fór fjölbreyttur hópur starfsfólks frá frístundaþjónustu Árborgar ásamt fulltrúum frá barnavernd og barnateymi Árborgar í fræðsluferð til Álaborgar í Danmörku. Markmið ferðarinnar var að kynna sér fjölbreytt úrræði fyrir börn og ungmenni og sækja innblástur til áframhaldandi þróunar starfsins.
Í ferðinni heimsótti hópurinn fjölbreytta starfsemi þar sem áhersla var lögð á snemmtæka íhlutun, vellíðan og stuðning við ungt fólk, opið aðgengi að þjónustu og aukna þátttöku ungmenna. Sérstaklega vakti athygli hversu markvisst er unnið að því að mæta ungu fólki á þeirra eigin forsendum, skapa örugg rými og byggja upp traust tengsl.
Meðal þess sem vakti athygli í heimsóknunum voru aðgengileg ráðgjafarúrræði þar sem auðvelt er að leita sér stuðnings án mikillar skuldbindingar. Einnig vakti athygli aukin þátttaka ungmenna í ákvarðanatöku, vel skipulagt hópastarf og hvernig unnið er með foreldrum, nýttur stuðningur frá jafnöldrum og sjálfboðaliðum í starfinu.
Sérstaka athygli vakti heimsóknin í Fritidscenteret Huset, þar sem ungmenni taka virkan þátt í að móta bæði starfsemi og dagskrá. Áhersla er lögð á skýrt og aðgengilegt skipulag sem stuðlar að aukinni þátttöku, og jafnframt er mæting fylgt markvisst eftir með viðeigandi viðbrögðum þegar þörf er á. Einnig vakti skipulagt íþróttastarf fatlaðra í Álaborg sérstakan áhuga, þar sem fjölbreytt úrval íþrótta er í boði og aðgengi að skráningu er gott og einfalt.

Hópurinn sá jafnframt tækifæri til að þróa starfsemina enn frekar hér heima, meðal annars með því að bæta aðstöðu, auka aðgengi að frístundastarfi og efla samvinnu milli þjónustuaðila. Áhersla á inngildingu og traust tengsl var rauður þráður í heimsóknunum. Um leið staðfesti ferðin að í Árborg sé unnið mikið faglegt og gott starf sem mikilvægt er að standa vörð um og byggja áfram á.

