Framvinda fjölnota íþróttahússins á Selfossi
Í gær miðvikudaginn 15.01 var ákveðnum áfanga náð í byggingu á fjölnota íþróttahúsinu á Selfossi þegar fyrsta steypa fór fram.
Sökkulfótur undir norðurvegg hússins var steyptur og fóru í hann um 110 m3 af steypu. Verkið gengur vel og er jarðvinnan komin vel á veg. Reikna má með að fyllingar undir vesturhlið hússins ljúki í vikunni og búið er að moka upp fyrir austurhlið hússins.