Frístundaheimili Árborgar til Kaupmannahafnar
Starfsfólk allra frístundaheimila Árborgar fór saman í námsferð til Kaupmannahafnar í apríl.
Heimsótt voru átta frístundaheimili, bæði innan Kaupmannahafnar og í nærliggjandi sveitarfélögum. Markmið ferðarinnar var að efla þekkingu starfsfólks, stuðla að miðlun reynslu og kynna ólíkar leiðir í starfi með börnum.
Starfsfólkinu var skipt í hópa þvert á starfsstaði til að auka samstarf og tryggja fjölbreytta sýn á starfsemi frístundaheimila. Að lokinni hverri heimsókn fór fram ígrundun með starfsfólki þar sem rætt var hvað þeim fannst áhugaverðast, hugmyndir sem mætti innleiða í starfið hér á landi og styrkleika eigin starfsemi í samanburði við það sem fyrirfannst erlendis.
Eftir vinnudaga tók starfsfólk þátt í hópefli í Kaupmannahöfn sem stuðlaði að frekara samstarfi og samheldni. Ferðin þótti afar vel heppnuð og sneri hópurinn heim með aukinn metnað, nýjar hugmyndir og dýrmæta reynslu sem nýtist í áframhaldandi þróun starfs frístundaheimilanna.







