Frítt í sundlaugar Árborgar fyrir öll börn 17 ára og yngri
Bæjarráð Árborga samþykkti á fundi 28.maí sl. að veita öllum börnum 17 ára á yngri frían aðgang að sundlaugum Árborgar til 1.október 2020.
Öll börn 17 ára og yngri, óháð búsetu að þjóðerni geta því komið frítt í sundlaugar Árborgar á Selfossi og Stokkseyri til 1.október 2020. Það er þó minnt á það að börn yngri en 10 ára verða að koma í sund í fylgt fullorðinna.
Sveitafélagið Árborg býður alla velkomna í sundlaugar Árborgar. –Það er gaman í sundi-