Fyrsta skóflustunga að stækkun Jötunheima tekin með leikskólabörnum og starfsfólki
Í dag k. 10:30 var samningur undirritaður og fyrsta skóflustunga tekin að viðbyggingu leikskólans Jötunheima á Selfossi.
Samningur Framkvæmda- og tæknideildar Árborgar við Karina ehf vegna jarðvinnu við Jötunheima var undirritaður og skrifaði Bragi Bjarnason bæjarstjóri undir fyrir hönd Árborgar. Í framhaldi af því var fyrsta skóflustunga að stækkun leikskólans tekin og létu leikskólabörnin sitt ekki eftir liggja í mokstrinum við mikinn fögnuð viðstaddra. Börnin sem tóku þátt voru þau Lilja Magnea Sandholt, Mikael Ivan Ingvarsson, Mikael Narfi Stefánsson og Rakel Sara Elvarsdóttir. Þau munu öll vera í útskriftarhóp leikskólans þegar nýja viðbyggingin verður tekin í notkun.
Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum haustið 2027 og verður leikskólinn Jötunheimar þá fyrsti 12 deilda leikskólinn undir einu þaki á Íslandi.
Miklar gleðifréttir fyrir leikskólamál í Árborg.






