Fyrsta þríþrautarmótið á Selfossi
Fimmta bikarmótið í þríþraut fór fram á Selfossi laugardaginn 12. ágúst við frábærar aðstæður.
Úrslit fimmta bikarmóts í þríþraut
Keppt var í sprettþraut með örlítið styttum vegalengdum (750m sund, 18km hjól og 4,6km hlaup) á flatri braut og góðir tímar náðust. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt var í þríþraut á Selfossi en eins og fyrr hefur komið fram var öll framkvæmd til fyrirmyndar.
Í kvennaflokki sigraði Sara Árnadóttir á tímanum 67 mínútur og 4 sekúndur. Önnur varð Kristín Laufey Steinadóttir einungis 21 sekúndu á eftir Söru en hún hafði örlítið forskot þegar hlaupið byrjaði. Þær keppa báðar fyrir Sundfélagið Ægi. Ewa Przybyla úr Breiðablik varð þriðja á tímanum 71 mínútur og 33 sekúndur. Sara tryggði sér jafnframt bikarmeistaratitil ÞRÍ þrátt fyrir að eitt bikarmót sé eftir.
Í karlaflokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson á tímanum 52 mínútur og 10 sekúndur. Stefán Karl Sævarsson varð annar á tímanum 54 mínútur og 54 sekúndur. Bjarni Jakob Gunnarsson varð þriði á tímanum 56 mínútur og 42 sekúndur en þeir keppa allir fyrir Breiðablik.
Í byrjendaflokki sigruðu Sif Sumarliðadóttir á tímanum 75 mínútur og 6 sekúndur og Ægir Sigurðsson á tímanum 69 mínútur og 51 sekúnda.
Breiðablik sigraði stigakeppni karla og Ægir sigraði stigakeppni kvenna og heildarstigakeppnina.
Þríþrautarsambandið vill þakka öllum þátttakendum og sjálfboðaliðum innilega fyrir frábæra keppni á Selfossi á laugardaginn, án þeirra væri ekki hægt að halda svona keppni. Það var virklega gaman að sjá hversu margir nýliðar mættu og spreyttu sig á keppninni.
Einnig vill Þríþrautarsambandið sérstaklega þakka Selfossbæ og Sveitarfélagið Árborg fyrir að taka svona vel á móti keppendum og hlakka klárlega til næstu keppni á Selfossi.
mynd: Golli