Gatnagerðargjöld fyrir atvinnulóðir lækka
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 4. júní sl. endurskoðaða samþykkt fyrir gatnagerðar- og byggingarréttargjöld í Sveitarfélaginu Árborg.
Helstu breytingar eru lækkun gatnagerðargjalda á atvinnulóðir, lágmarksgjalds við úthlutun atvinnulóða og afsláttur vegna jarðvegsdýpis.
Undanfarna mánuði hefur staðið yfir endurskoðun á gatnagagerðar- og byggingarréttargjöldum í Sveitarfélaginu Árborg. Um er að ræða tvær samþykktir sem hafa verið sameinaðar í eina til einföldunar og aukins gegnsæis fyrir framkvæmdaaðila. Gjaldskrá gatnagerðargjalda var um leið skoðuð og samræmd að hluta við nágrannasveitarfélög Árborgar.
Markmið bæjarstjórnar er að auka samkeppnishæfni sveitarfélagsins og ýta undir uppbyggingu fjölbreyttrar atvinnustarfsemi á svæðinu.
Gatnagerðargjöld atvinnulóða lækka um helming
Helstu breytingar í samþykktinni snúa að atvinnulóðum og eftirfarandi þáttum:
- Gatnagerðargjöld fyrir atvinnulóðir lækka úr 10 prósentum í 5 prósent af verðgrunni gatnagerðargjalds hjá Hagstofunni.
- Veittur er afsláttur af gatnagerðargjöldum fari jarðvegsdýpt lóðar niður fyrir 4 metra frá botnplötu (lægsta gólfi). Ákvæðið gildir um allar gerðir lóða.
- Lágmarksgjald við úthlutun atvinnulóða tekur mið af nýtingarhlutfalli 0,3 í samræmi við gildandi deiliskipulag. Byggingarmagn umfram nýtingarhlutfall 0,3 er greitt við samþykkt byggingarleyfi.
- Byggingarréttargjald er greitt í samræmi við gjaldskrárleið tvö við úthlutun atvinnulóða að nýtingarhlutfalli 0,3. Umfram byggingarmagn er greitt í samræmi við gjaldskrárleið eitt við samþykkt byggingarleyfi.
Samþykkt um gatnagerðargjald og byggingarréttargjald í Sveitarfélaginu Árborg