Gjaldskylda á bílastæðum við ráðhús
Í lok þessarar viku hefst gjaldskylda á bílastæðunum aftan við Ráðhús Árborgar. Gjaldtakan verður í gildi allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Markmið breytingarinnar er að tryggja aðgengi að bílastæðum fyrir starfsfólk og gesti Ráðhússins
Á síðustu misserum hefur ágangur á bílastæðin aukist, meðal annars vegna gjaldskyldu í nýju bílastæðahúsi við miðbæinn og gjaldskyldu og fyrirhugaðra framkvæmda við Austurveg 4.
Með gjaldskyldunni er ætlunin að koma í veg fyrir að bílar séu skildir eftir í stæðunum yfir nótt og tryggja að stæðin nýtist þeim sem þurfa á þeim að halda yfir daginn.
- Ekki verður gjaldskylda fyrir viðveru sem er skemur en 30 mínútur
- Fyrsta klukkustundin er ódýrari en þær sem á eftir koma
- Ekki er sama gjaldskrá á virkum dögum og um helgar
Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til betri nýtingar á stæðunum í þágu allra sem sækja Ráðhúsið.