Gjöf frá Kvenfélagi Selfoss
Kvenfélag Selfoss færir sundlaugum Árborgar gjafabréf til kaupa á leikföngum.
Fimmtudaginn 13. október mættu félagar í Kvenfélagi Selfoss, Jóna Sigfríð Sigurbjartsdóttir, formaður, Rakel Þórðardóttir, varaformaður og Jórun Helena Jónsdóttir gjaldkeri í Sundhöll Selfoss færandi hendi með gjafabréf upp á 50.000 kr.
Gjöf kvenfélagsins á að renna til kaupa á leikföngum fyrir sundlaugar Árborgar.
Gjöfin kemur til með að nýtast vel og er áætlað að kaupa leikföng fyrir alla aldurshópa barna. Sundlaugar sveitarfélagsins koma til með að leggja til sömu upphæð á móti til kaupa á leikföngum.
Við þökkum Kvenfélagi Selfoss kærlega fyrir gjöfina sem mun gleðja yngstu gesti sundlauga sveitarfélagsins.